Náttúrufræðistofa
Forsíða
Þjónusta
Fréttir
Um okkur
Starfsfólk
Fyrirspurn
Tenglar
Safngripir
Fiskar
Fuglar
Lindýr
Spendýr
Skordýr
Steinar
Rannsóknir
Útgefið efni
Alþjóðlegt samstarf
Heimilda- og tegundalistar
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi
Ráðstefnur
Vöktunarverkefni
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna
Yfirstandandi rannsóknir
Rannsóknir Náttúrufræðistofu Kópavogs
Náttúrufræðistofu Kópavogs vinnur að nokkrum rannsóknarverkefnum í einu í samstarfi við aðra eða alveg á eigin vegum. Smellið á nafnið til að skoða betur rannsóknarverkefnin.
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna

"Yfirlitskönnun á lífríki íslenskra vatna: samræmdur gagnagrunnur" (gjarna kallað vatnaverkefnið) er eitt viðamesta verkefni náttúrufræðistofunnar. Það hófst árið 1992 og er samstarfsverkefni fjögurra stofnana sem eru auk náttúrufræðistofunnar, Líffræðistofnun Háskóla Íslands, Hólaskóli í Hjaltadal og Veiðimálastofnun. Ýmsa aðrar stofnanir og einstaklingar hafa einnig komið að verkefninu, á afmörkuðum fræðasviðum.

Nú hefur gögnum verið safnað með samræmdum hætti úr um 80 vötnum sem eru dreifð um allt land. Frumúrvinnslu er að mestu lokið en eftir er töluverð vinna við fíngreiningar. Þá eru fjölmargir möguleikar á ýmiskonar samanburðarrannsóknum. Mikið af þeirri vinnu sem eftir er, mundi henta sem námsverkefni (bæði stór og smá) fyrir áhugasama líffræðinema.

Verið er að endurskipuleggja rannsóknahluta heimasíðu natkop
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi

Um þessar mundir vinna þrír nemendur að rannsóknarnámsverkefnum í tengslum við Náttúrufræðistofu Kópavogs og byggja öll verkefnin á gögnum úr rannsóknarverkefninu Yfirlitskönnun á lífríki íslenskra vatna, gjarnan kallað "Vatnaverkefnið".

Rykmý gegnir aðalhlutverkinu í tveimur verkefnum enda er það eitt af algengustu smádýrum í straum- og stöðuvötnum á Íslandi. Í þriðja verkefninu er sjónum beint að hornsílum og er ætlunin að kanna samband umhverfis og svipgerðar sílanna.

Hér að neðan er fjallað nánar um þessi rannsóknaverkefni, en að auki er greint frá verkefnum sem lokið er, eða tengjast náið þeim verkefnum sem í gangi eru.
Útgefið efni
Hér er hægt að nálgast útgefið efni af ýmsu tagi sem Náttúrufræðistofan hefur komið að. Hér er einnig að finna samantekt á helstu rannsóknum, þar sem m.a. er að finna veggspjöld (postera) sem kynnt hafa verið á ráðstefnum hér heima og erlendis.
Alþjóðlegt samstarf
Náttúrufræðistofa Kópavogs er í samstarfi við fræðimenn og vísindastofnanir erlendis. Hér að neðan er hægt að fræðast um þátttöku Náttúrufræðistofunnar í alþjóðlegum samstarfsverkefnum.
Ráðstefnur

Starfsmenn Náttúrufræðistofu Kópavogs leitast við að sækja ráðstefnur sem tengjast starfsemi stofunnar, bæði innanlands og utan. Þátttaka í ráðstefnum víkkar sjóndeildarhringinn og persónuleg kynni takast með fólki sem vinnur að tengdum verkefnum. Þá virka þær afkastakvetjandi þar sem menn vilja jú helst hafa eitthvað nýtt fram að færa.
Vöktunarverkefni
Náttúrufræðistofa Kópavogs hefur í gegn um tíðina tekið þátt í vöktunarverkefnum sem snerta ýmis svið vatnalíffræðinnar. Með hugtakinu vöktun (monitoring) er átt við reglulega sýnatöku og/eða mælingu á tilteknum þætti/þáttum í langan tíma (a.m.k. nokkur ár).

Þátturinn sem vaktaður er þarf að vera mikilvægur í viðkomandi kerfi og helst fremur auðveldur og hagkvæmur að fylgjast með. Hér að neðan má finna frekari umfjöllun um þau vöktunarverkefni sem Náttúrufræðistofan hefur komið að.
Yfirstandandi rannsóknir
Náttúrufræðistofa Kópavogs hefur í gegn um tíðina lagt mikla áherslu á rannsóknir á lífríki stöðuvatna. Hér má finna yfirlit yfir þær rannsóknir sem standa yfir á hverjum tíma. Rannsóknaverkefnum Náttúrufræðistofu Kópavogs má skipta gróflega í eftirfarandi 3 hópa:
Heimilda- og tegundalistar
Hér er ætlunin að birta heimilda- og tegundalista sem teknir hafa verið saman í tengslum við hin margvíslegustu verkefni eða málaflokka.
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is