|
|
 |
 |
| 13. janúar 2012 |
|
 |
  Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 10. janúar sl. að friðlýsa hluta Skerjafjarðar sem er innan bæjarmarka Kópavogs með fjörum ásamt grunnsævi. Samkvæmt því verða friðlýst tvö svæði, annars vegar í Kópavogi (39 ha) og hins vegar í Fossvogi (23,6 ha), alls um 62,6 ha svæði. Samþykktin er í samræmi við Náttúruverndaráætlun 2004–2008 og 2009–2013. Náttúrufræðistofa Kópavogs hefur komið að þessu máli bæði með ráðgjöf og rannsóknum á lífríki svæðisins. Skerjafjarðarsvæðið í heild hefur alþjóðlegt verndargildi vegna farfuglategunda, svo sem rauðbrystings og margæsar, en þar er að finna lífríkar þangfjörur, leirur og grunnsævi sem skapa undirstöðu fyrir afar fjölbreytt fuglalíf allan ársins hring. Svæðið er einnig mikilvægt vegna marhálms og sjávarfitjungs sem hafa takmarkaða útbreiðslu hér á landi, en marhálmur er ein aðal fæða margæsar. nánar -> |
 |
 |
| 17. október 2011 |
|
 |
  Sýningin Eyjafjarðarfossar verður opnuð í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs laugardaginn 22. október kl. 14. Hjálmar Hjálmarsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs opnar sýninguna. Andrea Gylfadóttir og Kjartan Valdemarsson sjá um tónlist. Á sýningunni eru ljósmyndir af 42 fossum í eyfirskum vatnsföllum eftir Svavar Alfreð Jónsson, áhugaljósmyndara og prest við Akureyrarkirkju. Ljósmyndirnar á sýningunni tók Svavar á árunum 2009 til 2011. Fossarnir 42 eru í 25 straumvötnum sem renna í sveitum Eyjafjarðar. Samtals er fallhæð fossanna um 270 metrar og er sá hæsti um 18 metrar og meðalhæðin 6,4 metrar. Aðkoma að sumum fossunum var erfið og í einstaka tilfellum mátti Svavar þakka Guði sínum fyrir að sleppa heilu og höldnu úr hættulegu klungri. Léttar veitingar verða í boði. Sýningin stendur til 1. desember 2011. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. nánar -> |
 |
 |
| 25. ágúst 2011 |
|
 |
 Á dögunum bárust starfsfólki Náttúrufræðistofunnar fregnir af drekaflugu á sveimi í húsagarði við Kambsveg í Reykjavík, skammt frá Sundahöfn. Drekaflugan náðist ekki en heimilisfólkið náði ágætum ljósmyndum af henni. Ekki var hægt að greina hana til tegundar af ljósmyndunum en af þeim má ráða að um 10 cm langt dýr var að ræða. nánar -> |
 |
 |
| 22. júní 2011 |
|
 |
Hin árlegu sumarnámskeið Náttúrufræðistofunnar fyrir 10-12 ára krakka eru nú í fullum gangi. Á námskeiðunum er áhersla lögð á útiveru og náttúruskoðun. Meðal annars eru tekin sýni sem síðan eru skoðuð frekar í rannsóknastofu og niðurstöðurnar skráðar. Þannig fá krakkarnir innsýn í vísindaleg vinnubrögð.
Oft hefur verið haft á orði að þessi námskeið séu kærkomin viðbót við hin fjölmörgu leikja- og íþróttanámskeið sem haldin eru á sumrin.
nánar -> |
 |
 |
| 10. maí 2011 |
|
 |
 Haldið verður upp á afmælisdag Kópavogs þann 11. maí, kl. 16:00 með opnun sýningar á verkum Hauks Einarssonar, Holað í steininn. Tilefni sýningarinnar er myndarleg gjöf Guðríðar Gísladóttur, ekkju Hauks heitins, á úrvali steina og kristalla sem þau hjónin söfnuðu og Guðríður færði Náttúrufræðistofunni fyrir skömmu. Í ljós kom að á heimili hjónanna var ekki einungis að finna gott steinasafn, sem nú er að hluta til í eigu Náttúrufræðistofunnar, heldur einnig athyglisvert safn af listmunum eftir Hauk.
Um er að ræða ýmsa muni og gripi sem Haukur meitlaði, svarf og skar í stein, bein og tré. Öll verkin eru unnin í íslenskan efnivið. Hluta þessara verka úr einkasafni Guðríðar býðst almenningi að skoða á sýningunni. nánar -> |
 |
 |
| 3. maí 2011 |
|
 |
  Hinir árlegu Kópavogsdagar hefjast þann 7. maí næstkomandi og er dagskráin að taka á sig endanlega mynd. Eins og fyrri ár munu Náttúrufræðistofan og Bókasafnið taka sig saman með dagskrá fyrir yngstu kynslóðina.
Fyrir hina eldri mun m.a. verða boðið upp á krassandi fræðsluerindi um pöddur í heimahúsum og vöktun lífríkis í Fossvogi. Á sjálfan afmælisdaginn verður svo opnuð sýningin "Holað í steininn".
Hér má nálgast dagskrá Kópavogsdaga.
nánar -> |
 |
 |
| 7. apríl 2011 |
|
 |
 Náttúrufræðistofu Kópavogs barst fyrir rúmi ári síðan myndarleg steinagjöf úr dánarbúi Ólínu Sigurðardóttur og Dags Daníelssonar á Álfhólsvegi 82.
Frumkvæði að gjöfinni áttu sonurinn Daníel Dagsson og Guðlaug Snorradóttir. Steinasafnið hefur nú verið flokkað og skráð. er um að ræða stórt og gott safn steina, með um 200 eintökum víðs vegar að af landinu og nokkrum mjög góðum eintökum af hrafntinnu og geislasteinum. Steinarnir voru tíndir á ferðalögum fjölskyldunnar um landið að sögn Daníels.
nánar -> |
 |
 |
| 7. apríl 2011 |
|
 |
Nú er ársskýrsla Náttúrufræðistofu Kópavogs fyrir árið 2010 komin út. Þar er að finna allar helstu upplýsingar er varða rekstur og starfsemi stofunnar á síðast ári. Í inngangi skýrslunnar segir m.a.
„Starfsemi Náttúrufræðistofu Kópavogs á árinu 2010, sem var 27. starfsár stofunnar, gekk vel þrátt fyrir þrengingar sem rekja má til fjármálahamfaranna haustið 2008. Aðsókn að sýningarsafninu var mjög góð og enn eitt aðsóknarmetið var slegið þrátt fyrir að þjónusta við safngesti hafi verið skert með styttri opnunartíma sýningarsafnsins. Sýningarhald var fjölbreytt sem endranær og höfðaði til fólks á öllum aldri. Þá var þokkalegur gangur í rannsóknastarfseminni“.
Sérstaka ánægju vekur að gestum heldur áfram að fjölga milli ára, enda er náttúrugripasafn stofunnar það eina á höfuðborgarsvæðinu sem að jafnaði er opið almenningi eftir að safni Náttúrufræðistofnunnar Íslands var lokað.
Ársskýrslur stofunnar er að finna undir flipanum Um stofuna hér að ofan.
nánar -> |
 |
 |
| 28. febrúar 2011 |
|
 |
 Ráðstefnan Umhverfismengun á Íslandi - vöktun og rannsóknir var haldin þann 25. febrúar sl. Ráðstefnan var haldin að frumkvæði Umhverfisráðuneytisins, Matís og Umhverfisstofnunar. Þátttaka var góð, en yfir 100 manns skráðu sig, alls staðar að af landinu. Flutt voru fjölmörg erindi en einnig voru verkefni kynnt á veggspjöldum. Efni ráðstefnunnar spannaði íslenska náttúru frá fjallatoppum niður í hyldýpi úthafsins og er óhætt að segja að margt áhugavert sé að gerast í vöktunarrannsóknum hér á landi. Náttúrufræðistofan kynnti tvö vöktunarverkefni sem unnið hefur verið að í nokkur ár. Annars vegar er um að ræða vöktun á eðlisþáttum í nokkrum vötnum á höfuðborgarsvæðinu, en hins vegar vöktun á magni blaðgrænu-a í Þingvallavatni. Kynningin fór fram á veggspjöldum sem hér má nálgast. Hér er svo að finna dagskrá ráðstefnunnar. nánar -> |
 |
 |
| 10. febrúar 2011 |
|
 |
Undanfarið hefur staðið yfir vinna við gerð nýrrar heimasíðu Náttúrufræðistofu Kópavogs og er hún hér með komin í loftið. Útlit og uppsetning síðunnar er gjörbreitt frá því sem var og er von okkar að bærilega hafi tekist til.
Svo skemmtilega vill til að gangsetning síðunnar fer nánast saman við Safnanótt og því má segja að tvöföld ástæða sé til að fagna.
Með því að smella á þennan tengil er hægt að nálgast upplýsingar um hinar merkilegu íslensku grunnvatnsmarflær, en þær voru hryggjarstykkið í dagskrá Náttúrufræðistofunnar á Safnanótt.
nánar -> |
 |
 |
| 9. febrúar 2011 |
|
 |
Nú er dagskrá þeirra safna í Kópavogi sem taka þátt í Safnanótt orðin endanlega ljós. Þátttakendur verða Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Héraðs- skjalasafn Kópavogs, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Tónlistarsafn Íslands og Molinn - ungmennahús. Óhætt er að segja að dagskráin sé glæsileg og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Ef smellt er á tengilinn opnast glæsilegur bæklingur þar sem dagskrá Safnanætur í Kópavogi er gerð góð skil. Hér má svo finna nánari upplýsingar um alla viðburði safnanætur nánar -> |
 |
 |
| 31. janúar 2011 |
|
 |
Þann 11. febrúar næstkomandi munu söfn víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu taka þátt í hinni árlegu Safnanótt. Þema safnanætur að þessu sinni er íslendingurinn og verður gaman að sjá hvernig hinir fjölmörgu og ólíku þátttkandendur nálgast það viðfangsefni. Íslendingar Náttúrufræðistofu Kópavogs eru íslenskar grunnvatnsmarflær, einlendar tegundir krabbadýra sem bundnar eru við vatnsmikil grunnvatnskerfi á hinu eldvirka belti landsins. Um er að ræða tvær tegundir sem þróast hafa hér á landi og finnast hvergi annars staðar. Hér má finna nánari upplýsingar um safnanótt.
nánar -> |
 |
 |
| 28. janúar 2011 |
|
 |
Það voru undrandi náttúrufræðingar sem tóku við tveimur syfjulegum holugeitungsdrottningum nú í vikunni. Janúar hefur fram til þessa ekki verið þekktur sem sá tími þegar skordýr vakna úr dvala, en geitungarnir hafa jú það sér til málsbóta að veðráttan undanfarið hefur verið meira í ætt við vorblíðu en vetrarhörkur. nánar -> |
 |
 |
| 19. desember 2010 |
|
 |
 Þegar líður á aðventuna berast okkur undantekningalaust fyrirspurnir um ýmis smádýr sem slæðst hafa til landsins með innfluttum jólatrjám. Oftar en ekki er um að ræða svokallaðar skortítur sem lifa m.a. á að sjúga safa úr barrnálum. Þessi dýr geta verið mjög litfögur og skrautleg og oftar en ekki í hefðbundnum jólalitum, græn, rauð og jafnvel málmgljáandi eins og sú á myndinni hér til hliðar. Mjög er þó misjafnt hve hrifnir eigendur jólatrjánna eru af hinum fagurlituðu gestum sínum. nánar -> |
 |
 |
| 5. október 2010 |
|
 |
 Næstkomandi laugardag þann 9. október kl. 14 verður opnuð sýningin Trékarlar í anddyri Náttúrufræðistofunnar. Trékarlar eru útskornir tréstaurar sem öðlast hafa framhaldslíf með ástríðu og hugkvæmni Guðmundar Sigurðssonar, hagleikssmiðs og Kópavogsbúa. Hafsteinn Karlsson, formaður Lista- og menningarráðs Kópavogs, flytur ávarp við opnunina. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. nánar -> |
 |
 |
| 27. september 2010 |
|
 |
 Síðastliðinn föstudag tók Náttúrufræðistofa Kópavogs þátt Vísindavöku Rannís í annað skipti. Vísindavakan var haldin í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Mæting var frábær, en alls komu um 4200 manns á vökuna og var fullt út úr dyrum nánast allan tímann. Náttúrufræðistofan deildi sýningarrými með Hinu íslenska náttúrufræðifélagi, þar sem starfsemi stofunnar var kynnt með myndasýningu og sýnishornum af útgefnu efni. Jafnframt var stillt upp í þremur krukkum, einfaldaðri mynd af fæðuvef í íslenskum vötnum. Óhætt er að segja að þessi einfalda uppstilling hafi slegið í gegn, því að þó tveir starfsmenn stofunnar væru á staðnum, hafðist vart undan að skýra út fyrir forvitnum gestum á öllum aldri hvað þarna væri um að vera. nánar -> |
 |
 |
| 8. september 2010 |
|
 |
 Hin árlega fjölskylduganga á umhverfisdegi Kópavogs fer fram laugardaginn 11. september. Markmiðið er að gefa Kópavogsbúum færi á að kynnast nokkrum af helstu náttúruperlum og menningarminjum bæjarins. Umhverfisráð Kópavogs stendur fyrir deginum. Brottför verður frá Náttúrufræðistofu Kópavogs kl. 11:00. Gengið verður niður á Kópavogstún, síðan um Borgarholt og loks er hringnum lokað með heimsókn á Náttúrufræðistofu Kópavogs. Með í för verða Birgir Hlynur Sigurðsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Kópavogs, Hilmar Malmquist, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs og Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri. Gangan tekur um það bil klukkutíma. Hún verður krydduð með fjöri og fróðleik fyrir alla aldurshópa. Ömmur, afar, mömmur og pabbar eru hvött til að taka börnin með. Að lokinni göngu verður þátttakendum boðið upp á grillaðar pylsur og gos við Náttúrufræðistofu Kópavogs. Allir eru velkomnir! nánar -> |
 |
 |
| 28. ágúst 2010 |
|
 |
Í tilefni hátíðarinnar verður auk hefðbundinnar leiðsagnar, sérstök umfjöllun um hin sérstæða kúluskít sem Náttúrufræðistofan hefur til sýnis og hefst hún kl. 14:00. Af þessu tilefni hafa gestir safnsins einstakt tækifæri til að kynnast þessum furðulegu lífverum í nágvígi - hvern hefur t.d. Ekki alltaf dreymt um að klappa kúluskít??? nánar -> |
 |
 |
| 25. ágúst 2010 |
|
 |
 Þann 24. ágúst sl. Fór hópur frá Náttúrufræðistofunni upp að toppgíg Oksins, en þar hefur á allra síðustu árum myndast nýtt stöðuvatn í kjölfar jökulbráðnunar. Samkvæmt GPS mælingum er vatnið í um 1114 metra hæð, en vötn ofan við 1000 metra hæð eru afar fá hér á landi og lausleg athugun bendir til að hið nýja vatn sé það hæsta - að Grímsvötnum undanskildum. Ferðin var farin í þeim tilgangi að kortleggja stærð og dýpi vatnsins og taka sýni til að kanna hvort- og þá hvaða lífverur hafa náð að nema land á þeim skamma tíma sem liðinn er frá myndun vatnsins, en þess varð fyrst vart í ágúst 2007. nánar -> |
 |
 |
| 27. júlí 2010 |
|
 |
Frá og með 3. ágúst n.k. Breytist opnunartími Náttúrufræðistofu Kópavogs og Bókasafnsins. Ekki verður lengur opið á sunnudögum í Safnahúsinu og opnunartími styttist á kvöldin. Þetta er gert í sparnaðarskyni samkvæmt ákvörðun fráfarandi bæjarstjórnar Kópavogs. Opnunartíminn frá 3. ágúst verður því sem hér segir: Mánudaga til fimmtudaga kl. 10.00 – 19.00 föstudaga kl. 11.00 – 17.00 laugardaga kl. 13.00 – 17.00 sunnudaga lokað. nánar -> |
 |
 |
| 27. júlí 2010 |
|
 |
Að venju verður lokað í Safnahúsinu yfir verslunarmannahelgina, þ.e. Dagana 31. júlí til 2. ágúst. Góða helgi. nánar -> |
 |
 |
| 7. júlí 2010 |
|
 |
 Íslenski safnadagurinn í ár verður haldinn sunnudaginn 11. júlí og ber yfirskriftina Fyrir fjölskylduna. Á Náttúrufræðistofunni verður boðið upp á leiðsögn um sýningu Magnúsar Árnasonar AF LIFUN og sérstök kynning verður fyrir krakka á hinum einstaka kúluskít sem lifir í Mývatni. Dagskráin hefst kl. 15.00. Á safnadeginum verða sýningasalir Náttúrufræðistofunnar opnir eins og venja er á sunnudögum milli kl. 13 og 17 og aðgangur er sem fyrr ókeypis. nánar -> |
 |
 |
| 7. júlí 2010 |
|
 |
Í vikunni barst okkur sýni af bjöllum sem safnað hafði verið í víðirunna austur í Grafningi og bárust böndin strax að asparglyttu (Phratora vitellinae). Sú greining var skömmu síðar staðfest af Erling Ólafssyni skordýrafræðingi á Náttúrufræðistofnun Íslands og er þarna um að ræða nýjan fundarstað á landinu. Asparglytta fannst fyrst hér á landi árið 2005 í skógræktarstöðinni að Mógilsá og hefur síðan dreifst nokkuð um höfuðborgarsvæðið. Um er að ræða bjöllu sem sækir í víðirunna og aspir og getur valdið verulegum skemmdum. Greinargóða umfjöllun um þennan vágest er að finna á vef Náttúrufræðistofnunnar Íslands. nánar -> |
 |
 |
| 6. júlí 2010 |
|
 |
 Að undanförnu hefur verið óvenju mikið að gera við að taka á móti fyrirspurnum er varða skordýr og pöddur ýmiskonar. Þá hefur borist mikið af skordýrum til greiningar. Að lang mestu leiti er það almenningur sem setur sig í samband við okkur, en einnig er nokkuð um að meindýraeyðar leiti til okkar. Almennt er ekki tekið gjald fyrir pöddugreiningar og er fólk hvatt til að setja sig í samband við okkur ef spurningar vakna og eins ef vart verður við eitthvað óvenjulegt eða framandi. nánar -> |
 |
 |
| 28. júní 2010 |
|
 |
Sólmánuður er mánuður hásumarsins, þegar dagurinn er lengstur. Maríuerla sem kennd er við Maríu mey, er fugl sem ekki slórar við tilgang ferðar sinnar yfir úthafið, sem er að koma hér upp afkvæmum sínum. Þeir koma flestir í lok apríl og fara í lok ágúst. Maríuerlur verpa jafnan bara einu sinni á sumri en oft verpa smáir spörfuglar tvisvar. nánar -> |
 |
 |
| 23. júní 2010 |
|
 |
Þann 24. júní efnir Norræna húsið til málþings um tækifærin sem felast í friðlandi í miðri borg og möguleikum til endurbóta á núverandi ástandi. Málþingið hefst kl. 10 og stendur til kl. 12. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Dagskrá málþingsins er sem hér segir: 10.00 Jóhann Óli Hilmarsson, fuglafræðingur: “Tilgangur friðlandsins og ástand varpfugla” 10.15 Erik Jeppesen, prófessor í vatnavistfræði við Árósarháskóla: “Lake restoration and the possibilities of restoring the city lakes in Reykjavik” 10.40 Natalie Jeremijenko, prófessor við NY Háskóla: “Wetlanding: on the spectacular possibilities and environmental services of urban wetland ecosystems” 11.00 Arnaldur Schram, arkitekt: “Arkítektúr, vistkerfi og landslag, framtíðarsýn á friðlandið” 11.15 Umræður og spurningar úr sal. nánar -> |
 |
 |
| 31. maí 2010 |
|
 |
Skerpla er annar mánuður í sumri samkvæmt gamla norræna tímatalinu og stendur frá 22. maí til 20. júní. Á þessum tíma hafa flestir fuglar hafið varp. Hrossagaukurinn er einn af þeim fuglum sem er bæði algengur og áberandi. Hann helgar sér landsvæði (óðal) og innan þess er hreiðrið. Óðalið ver hrossagaukurinn með einkennandi fluglagi og hneggi umhverfis svæðið. nánar -> |
 |
 |
| 19. maí 2010 |
|
 |
 Í júní verður að vanda boðið upp á tvö vikunámskeið í náttúrufræðum fyrir 10 til 12 ára börn. Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu í náttúrufræðum og veita þátttakendum innsýn í vísindaleg vinnubrögð. Farið verður í vettvangsferðir og m.a. rannsakað vatna- og fjörulífríki í Kópavogi og nágrenni. Á rannsóknastofu verða sýni mæld og skoðuð í smásjá og haldnar vinnubækur. Námskeið 1: 14. – 18. júní (fjórir dagar) Námskeið 2: 21. – 25. júní Námskeiðið stendur yfir frá kl. 10 – 15 hvern dag og mæta þátttakendur með nesti, stígvél og hlífðarföt. Innritun fer fram á Náttúrufræðistofu Kópavogs milli kl. 10 og 16 fram til 11. júní. Námskeiðsgjald er 5.600 kr. fyrir fyrri vikuna og 7.000 kr. fyrir þá seinni. Leiðbeinendur verða starfsmenn á Náttúrufræðistofunni. Athugið! Fjöldi þátttakenda takmarkast við 12 börn á hvoru námskeiði. nánar -> |
 |
 |
| 3. maí 2010 |
|
 |
 Kópavogsdagar verða settir laugardaginn 8. maí næstkomandi. Að venju er boðið upp á fjölbreytta menningardagskrá og má lesa sér til um dagskrána í heild hér. Náttúrufræðistofa Kópavogs lætur ekki sitt eftir liggja á Kópavogsdögum og býður upp á Freyju fisdægru, ævintýri fyrir krakka á leikskólaaldri, Litlar flugur – stórt hlutverk, fyrirlestur um rannsóknir á rykmýi, Fljúga hvítu fiðrildin, sem er yfirlitssýning á flækingsskordýrum, og Af lifun sem er sýning á verkum listamannsins Magnúsar Árnasonar. nánar -> |
 |
 |
| 12. apríl 2010 |
|
 |
Þá er komið að fugli einmánaðar hér á Náttúrufræðistofunni en það er hrafninn. En einmánuður er síðasti vetrarmánuðurinn í gamla norræna tímatalinu. nánar -> |
 |
 |
| 30. mars 2010 |
|
 |
Náttúrufræðistofa Kópavogs verður lokuð um páskana frá og með fimmtudeginum 1. apríl (skírdagur) til og með mánudagsins 5. apríl (annar í páskum). Opið verður samkvæmt venju frá og með þriðjudeginum 6. apríl. Starfsfólk Náttúrustofunnar óskar gestum sínum, samstarfsfólki og landsmönnum öllum gleðilegra páska. nánar -> |
 |
 |
| 18. mars 2010 |
|
 |
Dregið hefur verið í Safnanæturleiknum. Um 500 manns tóku þátt í þessum skemmtilega leik, enda vinningarnir sérlega veglegir. Vinningshafarnir í Safnanæturleiknum voru: 1. verðlaun, Boð á Safnanótt í Berlín 28. ágúst, flug með Iceland Express og 100.000 kr í gjaldeyri frá MP-banka: Steinunn Björk Bragadóttir. 2. verðlaun, út að borða fyrir tvo á Dill Restaurant í Norræna húsinu: Ársæll Jóhannsson. 3. verðlaun, geirfuglskerti frá Landnámssýningunni 871+/-2: Þórdís Erlingsdóttir. nánar -> |
 |
 |
| 11. mars 2010 |
|
 |
Miðvikudaginn 24. mars næstkomandi verður haldið málþing um jarðminjagarða (Geoparks) á Íslandi í Salnum, Hamraborg 6, Kópavogi. Að málþinginu standa Jarðfræðafélag Íslands, Náttúrustofa Suðurlands, Náttúrustofa Norðurlands vestra, Náttúrustofa Reykjaness, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Aðgangur er ókeypis en þátttöku þarf að tilkynna á netfangið steini@nnv.is fyrir 22. mars. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir og Óskar Bergsson, formaður Borgarráðs ávarpa þingið. Að því loknu flytja ellefu valinkunnir fræðimenn erindi og má sjá dagskrá þingsins í meðfylgjandi skjali. nánar -> |
 |
 |
| 23. febrúar 2010 |
|
 |
Þá er framhaldið með fugl mánaðarins hér á Náttúrufræðistofunni. Miðað er við gömlu norrænu mánaðarheitin og fugl þorra var snjótittlingur en nú er góan gengin í garð. Fugl góu er fýll og kannski má kalla hann fyrsta vorboðann. Hann hverfur af varpstöðvum seinnihluta september, flækist þá víða um höf, og fer að birtast aftur upp úr miðjum janúar. Lesa nánar nánar -> |
 |
 |
| 15. febrúar 2010 |
|
 |
Óhætt er að segja að safnanótt hafi verið vel tekið hér í Safnahúsinu og var stöðugur straumur fólks allt til loka um miðnætti. Alls komu rúmlega 800 gestir í Safnahúsið og nutu hinna fjölbreyttu atriða sem í boði voru. Ljóst má vera að Safnanótt er komin til að vera í Kópavogi. Starfsfólk Náttúrufræðistofunnar þakkar gestum sínum kærlega fyrir komuna. nánar -> |
 |
 |
| 5. febrúar 2010 |
|
 |
 Náttúrufræðistofa Kópavogs mun ásamt fleiri söfnum í Kópavogi taka þátt í Safnanótt föstudaginn 12. febrúar í fyrsta skipti. Þema Safnanætur að þessu sinni er draumar. Á vegum Náttúrufræðistofunnar verður boðið upp á tvo dagskrárliði. Annars vegar er leiðsögn kl. 21:00-22:30 sem ber heitið Eru fuglarnir guðir? og er í fygld Þorvaldar Friðrikssonar skrímslafræðings, sem leiðir næturgesti um skuggalega sýningarsali Náttúrufræðistofunnar og segir frá táknrænni merkingu íslenskra fugla og fleiri dýra í trúarbrögðum og draumförum manna. Hins vegar er atburðurinn Þorirðu að kíka? sem stendur yfir frá kl. 19:00 til loka safnanætur kl. 24:00. Þar er á ferð óræður skapnaður sem leynist í sýningarkassa í anddyri Náttúrufræðistofunnar. Spurningin er hvort gripurinn er lífs eða liðinn, manngerður eða náttúrulegur? Dagskrá Safnanætur á höfuðborgarsvæðinu er að finna hér á heimasíðu Safnanætur 2010. nánar -> |
 |
 |
| 21. janúar 2010 |
|
 |
Nú hefur verið tekin upp sú nýbreytni á Náttúrufræðistofu Kópavogs að kynna til sögunnar fugl mánaðarins . Jafnframt verður að finna upplýsingar um viðkomandi fugl hér á heimasíðunni. Ætlunin er að fylgja gömlu mánuðunum og er því fyrsti fuglinn fugl þorramánaðar. Að vonum er um að ræða fugl sem sannarlega tengist kulda, snjó og þolgæði, sjálfan snjótittlinginn. nánar -> |
 |
 |
| 20. janúar 2010 |
|
 |
 Á dögunum voru starfsmenn Náttúrufræðistofunnar við reglubundna sýnatöku og mælingar í Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Tjörnin var lögð 10 – 15 cm þykkum ís og vatnshiti undir honum var um 0,5° C. Það kom því nokkuð á óvart að finna stórvaxnar vatnaflær (2,5–3 mm) á sundi í vatnssýni sem tekið hafði verið til blaðgrænumælinga, enda á vatnalíf af þessu tagi almennt að vera í dvala að vetri til, samkvæmt bókinni. Í kjölfarið var málið kannað betur og reyndist þá vera mikil mergð af þessum dýrum í tjörninni. Dýrin voru þess utan ókunnugleg í útliti og lék grunur á að um væri að ræða nýja tegund fyrir landið! Sú mun þó tæpast vera raunin. nánar -> |
 |
 |
| 22. desember 2009 |
|
 |
 Starfsfólk Náttúrufræðistofu Kópavogs óskar gestum safnsins, velunnurum þess, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Bestu þakkir fyrir samveruna og samvinnuna á árinu sem er að líða. Sjáumst heil á nýja árinu! Náttúrufræðistofan og Bókasafn Kópavogs verða lokuð 25., 26. og 27. desember 2009 og 1., 2. og 3. janúar á nýja árinu. Á aðfangadag og gamlaársdag er opið frá kl. 10 til kl. 12. nánar -> |
 |
 |
| 26. nóvember 2009 |
|
 |
 Laugardaginn 28. nóvember verður haldin jólahátíð í Kópavogi á Hálsatorgi og í nærliggjandi menningarstofnunum. Kópavogsbúum og öðrum gestum er meðal annars boðið að taka þátt í laufabrauðsbakstri, hlusta á jólasöngva, fræðast um jólaköttinn og tendra á jólaljósunum á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa. Í Safnahúsinu bjóða Bókasafnið og Náttúrufræðistofan upp á vinsæla ævintýrið um Jólaköttinn fyrir 4-6 ára krakka. Lesa má dagskrána með því að smella á myndina hér til hliðar. nánar -> |
 |
 |
| 23. nóvember 2009 |
|
 |
 Þessi jól sem endranær er krökkum á leikskólaaldri boðið á jólaævintýri í Safnahúsinu, Hamraborg 6a, dagana 30. nóvember - 4. desember og 7. - 11. desember 2009. Boðið er upp á tvo ævintýratíma, kl. 10:00 og 11:00. Heimsóknin varir í um 45 mínútur. Vinsamlega pantið tíma í síma 570 0450. nánar -> |
 |
 |
| 20. nóvember 2009 |
|
 |
 Húsfyllir var í Salnum s.l. Miðvikudag á kynningu um mögulega nýtingu Þríhnúkagígs í þágu ferðamennsku og fræðslu um náttúru Íslands. Ríflega 200 manns mættu til leiks og hlýddu á bræðurna Árna og Einar Stefánssyni kynna verkefnið. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tóku þátt í kynningunni auk bæjarstjórans í Kópavogi, Gunnsteins Sigurðssonar. Sýning á hugmyndum Þríhnúka ehf. Og VSÓ Ráðgjafar um nýtingu Þríhnúkagígs stendur yfir á Náttúrufræðistofunni fram til 18. desember n.k. nánar -> |
 |
 |
| 11. nóvember 2009 |
|
 |
 Bæjarstjórn Kópavogs býður til kynningar á hugmyndum um nýstárlega nýtingu Þríhnúkagígs í þágu ferðamennsku og fræðslu um náttúru Íslands. Kynningin fer fram í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 18. nóvember kl. 17:00. Að fundinum standa bæjarstjórn Kópavogs, VSÓ Ráðgjöf og Náttúrufræðistofa Kópavogs. Fundurinn er opinn og allir eru velkomnir. nánar -> |
 |
 |
| 10. nóvember 2009 |
|
 |
 Dagana 6. og 7. nóvember sl. fór fram ráðstefna á vegum Líffræðifélags Íslands og Líffræðistofnunar háskólans. Með ráðstefnunni var verið að fagna 30 ára afmæli Líffræðifélagsins og jafnframt 35 ára afmæli Líffræðistofnunar. Ráðstefnan fór fram í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar og í Norræna húsinu. Starfsfólk Náttúrufræðistofu Kópavogs var að sjálfsögðu á meðal þátttakenda og hélt fjögur erindi þar sem kynnt voru nemendaverkefni og niðurstöður rannsókna sem unnið hefur verið að á Náttúrufræðistofunni. nánar -> |
 |
 |
| 29. september 2009 |
|
 |
 Nýlega barst Náttúrufræðistofu Kópavogs einkar fallegur og sérstæður fiskur og var honum strax komið fyrir í sjóbúri í sýningarsal stofunnar. Um er að ræða urrara, en nafnið er til komið af því að hann getur með aðstoð sundmagans gefið frá sér urrandi hljóð. Þá eru þrír neðstu geislar eyrugganna ummyndaðir í n.k. ganglimi. nánar -> |
 |
 |
| 25. september 2009 |
|
 |
 Hin árlega Vísindavaka hefst í dag 25. september kl. 17 í Listasafni Reykjavíkur. Náttúrufræðistofan tekur þátt í vísindavökunni og mun starfsfólk kynna starfsemi stofunnar á sviði sýninga, rannsókna og ráðgjafar. Á boðstólum verða m.a. lifandi hornsíli og hinn sérstaki kúluskítur, rannsóknaskýrslur til að rýna í og brugðið verður upp á skjá myndum úr starfseminni. Dagskrá Vísindavöku 2009 er að finna hér. nánar -> |
 |
 |
| 1. júlí 2009 |
|
 |
 Nú um mánaðamótin júní–júlí kom út á vegum Náttúrufræðistofunnar önnur gagnaskýrslan vegna vöktunar á lífríki og vatnsgæðum í Þingvallavatni. Um er að ræða langtímaverkefni sem hófst vorið 2007. Ástand Þingvallavatns árið 2008 var gott m.t.t. efna− og eðlisþátta og þörunga- og dýrasvifs úti í vatnsbolnum. nánar -> |
 |
 |
| 22. júní 2009 |
|
 |
 Vikuna 15. til 19. júní stóð Náttúrufræðistofan fyrir sumarnámskeiði í náttúrufræði fyrir 10 - 12 ára krakka. Fór námskeiðið vel fram og ekki var annað að sjá en það færu ánægðir þátttakendur sem luku námskeiðinu. nánar -> |
 |
 |
| 22. maí 2009 |
|
 |
 Í júní verður boðið upp á tvö vikunámskeið í náttúrufræðum fyrir krakka sem fædd eru á árunum 1997– 1999. Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu í náttúrufræðum og veita þátttakendum innsýn í vísindaleg vinnubrögð. Farið verður í vettvangsferðir og m.a. rannsakað vatna- og fjörulífríki í Kópavogi og nágrenni. Á rannsóknastofu verða sýni mæld og skoðuð í smásjá og haldnar vinnubækur. nánar -> |
 |
 |
| 15. maí 2009 |
|
 |
 Glöggur Kópavogsbúi við Sæbólsbraut hafði samband við Náttúrufræðistofu Kópavogs þann 14. maí og sagðist í tvígang hafa séð svölur á flugi fyrir utan gluggann hjá sér. Starfsmenn náttúrufræðistofunnar fóru á vettvang og komu einnig auga á fuglana á hringsóli í botni Fossvogs. Um var að ræða þrjár bæjarsvölur. nánar -> |
 |
 |
| 6. maí 2009 |
|
 |
 Kópavogsdagar verða settir laugardaginn 9. maí næstkomandi og standa yfir í viku fram til föstudagsins 15. maí. Þetta er í áttunda skipti sem Kópavogsbær stendur að þessari menningarhátíð og nú sem endranær er boðið upp á fjölbreytta dagskrá við allra hæfi sem lesa má hér. Náttúrufræðistofa Kópavogs lætur ekki sitt eftir liggja á Kópavogsdögum og býður upp á viðburði af ýmsu tagi. nánar -> |
 |
 |
| 5. maí 2009 |
|
 |
 Út er komin skýrsla á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs þar sem fjallað er um rannsókn á lífríki og efna– og eðlisþáttum í Bakkatjörn á Seltjarnarnesi á tímabilinu maí–október 2008. Verkefnið var unnið fyrir Umhverfisnefnd Seltjarnarnesbæjar. Ástand Bakkatjarnar var að mörgu leyti óvenjulegt, sérstaklega hvað varðar styrk næringarefna og magn svifþörunga. nánar -> |
 |
 |
| 17. mars 2009 |
|
 |
 Listamaðurinn Lísa K. Guðjónsdóttir opnar sýningu sína „Fiskur í steini“ í Náttúrufræðistofu Kópavogs fimmtudaginn 19. mars næstkomandi. Frá árinu 2000 hefur Lísa unnið í grjót en það er fyrst nú, á árinu 2009, sem hún sýnir steingerðar höggmyndir sínar opinberlega. nánar -> |
 |
 |
| 11. mars 2009 |
|
 |
Ársskýrsla Náttúrufræðistofu Kópavogs fyrir árið 2008, sem var 25. starfsár stofunnar, er komin út. Hægt er að nálgast skýrsluna hér. nánar -> |
 |
 |
| 13. janúar 2009 |
|
 |
 Náttúrufræðistofa Kópavogs lauk fyrir skömmu rannsókn á lífríki og efna– og eðlisþáttum í Hafravatni, en verkefnið var unnið fyrir Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis, Mosfellsbæ og Umhverfissvið Reykjavíkurborgar. Ástand Hafravatns var mjög gott m.t.t. flestra efna– og lífríkisþátta. Samanburður við eldri rannsóknir benda til athyglisverðra breytinga í vistkerfi vatnsins. nánar -> |
 |
 |
| 22. desember 2008 |
|
 |
 Starfsfólk Náttúrufræðistofu Kópavogs óskar gestum safnsins, velunnurum þess, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Bestu þakkir fyrir samveruna og samvinnuna á árinu sem er að líða. Sjáumst heil á nýja árinu! Náttúrufræðistofan og Bókasafnið verða lokuð á jóladag og annan í jólum nk.. Á aðfangadag og gamlaársdag er opið frá kl. 10:00 til kl. 12:00, en lokað er á nýársdag. nánar -> |
 |
 |
| 2. desember 2008 |
|
 |
 Nýlega var greint frá því í fjölmiðlum að PKD−nýrnaveiki hefði greinst í fiski í fyrsta skipti hér á landi. Um fundinn má einnig lesa á heimasíðu Veiðimálastofnunar. Um var að ræða bleikju úr Elliðavatni og frumdýrið Tetracapsuloides bryosalmonae sem veldur sýkingunni. Eðlilega vakna margar spurningar í kjölfar þessa fundar. Þar á meðal af hverju PKD−sýking skjóti fyrst upp kollinum nú. Enda þótt fullsnemmt sé að staðhæfa nokkuð í þessum efnum er ekki útilokað að hlýnun Elliðavatns eigi hér sök að máli. Myndin hér t.h. er af þráðmosungi (Fredericella sultana), sem er millihýsill fyrir sníkjudýrið. nánar -> |
 |
 |
| 27. nóvember 2008 |
|
 |
 Laugardaginn 29. nóvember verður haldin jólahátíð í Kópavogi á Hálsatorgi og í nærliggjandi menningarstofnunum. Kópavogsbúum og öðrum gestum er meðal annars boðið að taka þátt í laufabrauðsbakstri, hlusta á jólasöngva, fræðast um jólaköttinn og tendra á jólaljósunum á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa. Í Safnahúsinu bjóða Bókasafnið og Náttúrufræðistofan upp á vinsæla ævintýrið um Jólaköttinn fyrir 4-6 ára krakka. nánar -> |
 |
 |
| 17. nóvember 2008 |
|
 |
 Þessi jól sem endranær er krökkum á leikskólaaldri boðið á jólaævintýri í Safnahúsinu, Hamraborg 6a, dagana 1.-5. desember og 8.-12. desember 2008. Boðið er upp á tvo ævintýratíma, kl. 10:00 og 11:00. Heimsóknin varir í um 45 mínútur. Vinsamlega pantið tíma í síma 570 0450. nánar -> |
 |
 |
| 4. nóvember 2008 |
|
 |
 Náttúrufræðistofan gaf nýlega út fyrstu gagnaskýrsluna vegna vöktunar á lífríki og vatnsgæðum í Þingvallavatni, en um langtímaverkefni er að ræða sem hófst vorið 2007. Í stuttu máli sagt bendir flest til þess að ástand Þingvallavatns árið 2007 m.t.t. efna− og eðlisþátta og þörunga− og dýrasvifs úti í vatnsbolnum sé mjög gott og svipað því sem var fyrir um 30 árum. nánar -> |
 |
 |
| 28. september 2008 |
|
 |
 Ekvador verður í brennidepli á suður-amerískri menningarhátíð sem Kópavogsbær gengst fyrir og hefst laugardaginn 4. október nk. Fjölbreyttar sýningar verða í Salnum, Gerðarsafni og hér í Safnahúsinu hjá Náttúrufræðistofu og Bókasafni Kópavogs. Um dagskrána í heild má lesa á sérvef um Ekvador menningarhátíðina. nánar -> |
 |
 |
| 11. september 2008 |
|
 |
 Náttúrufræðistofunni barst á dögunum flundra (Platichthys flesus) sem veiddist í Kópavogslæk 3. september sl. Flundra er flatfiskur af kolaætt og einskonar nýbúi við Ísland, en hennar varð fyrst vart hér á landi í september 1999 þegar hún veiddist í Ölfusárósi. Kópavogsmeyjarnar Tinna Dofradóttir, Hera Katrín Aradóttir og Emilía Björg Atladóttir veiddu flundruna. nánar -> |
 |
 |
| 10. september 2008 |
|
 |
 Undanfarið hefur töluvert borið á fagurgrænum, grannvöxnum flugum utan á húsveggjum í mið- og vesturbæ Reykjavíkur. Þarna eru á ferð rykmý (Chironomidae) af ættkvíslinni Chironomus. Að öllum líkindum eiga flugurnar rætur að rekja til Reykjavíkurtjarnar og eða Vatnsmýrar. Tegundin sem um ræðir hefur ekki hlotið íslenskt heiti en skyld tegund er stóra toppflugan Chironomus islandicus, sem finnst í stöðuvötnum víða á landinu. nánar -> |
 |
 |
| 3. september 2008 |
|
 |
 Umhverfisráð Kópavogs stendur fyrir síðsumarsrölti fimmtudaginn 4. september til að kynna framtíðarskipulag og náttúrufar á svæðinu milli Heimsenda (hesthúsahverfinu) og Guðmundarlundar. Gangan hefst kl. 17:30 við Heimsenda. nánar -> |
 |
 |
| 7. ágúst 2008 |
|
 |
 Nýlokið er á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs og Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar ítarlegri rannsókn á ástandi Reykjavíkurtjarnar m.t.t. örvera og efna- og eðlisþátta. Vatnsgæði tjarnarinnar voru metin og tjörnin mengunarflokkuð í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns. Í ljós kom að Reykjavíkurtjörn er talsvert menguð, einkum m.t.t. saurgerla og næringarefna. nánar -> |
 |
 |
| 29. júlí 2008 |
|
 |
Náttúrufræðistofan og Bókasafn Kópavogs verða lokuð nú um verslunarmannahelgina, laugardaginn 2. ágúst til og með mánudags 4. ágúst. Góða helgi! nánar -> |
 |
 |
| 4. júlí 2008 |
|
 |
 Íslenski safnadagurinn í ár verður haldinn sunnudaginn 13. júlí næstkomandi. Sýningasalir Náttúrufræðistofunnar verða þá opnir eins og venja er á sunnudögum milli kl. 13 og 17 og aðgangur er sem fyrr ókeypis. Boðið verður upp á sérstaka leiðsögn um safnið og farið í plöntuskoðun á Borgarholtið. nánar -> |
 |
 |
| 29. apríl 2008 |
|
 |
 Kópavogsdagar hefjast laugardaginn 3. maí næstkomandi og standa yfir í viku fram til 11. maí. Þetta er í sjöunda skipti sem Kópavogsbær stendur að Kópavogsdögum. Að venju er í boði fjölbreytt dagskrá á vegum menningarstofnana bæjarins. Náttúrufræðistofa Kópavogs lætur ekki sitt eftir liggja á Kópavogsdögum og býður upp á viðburði af ýmsu tagi. nánar -> |
 |
 |
| 5. apríl 2008 |
|
 |
 Lokakeppni íslenskra grunnskóla í norrænu stærðfræðikeppninni verður haldin í Kópavogi dagana 22.–23. apríl nk. Þema keppninnar 2007–2008 er Stærðfræði og dýr. Sýning á verkefnum nema í 9. bekk frá 9 grunnskólum á landinu verður opnuð í Náttúrufræðistofunni þriðjudaginn 22. apríl og stendur fram á sunnudaginn 27. apríl. nánar -> |
 |
 |
| 21. febrúar 2008 |
|
 |
 Á Náttúrufræðistofu Kópavogs stendur til boða verkefni fyrir nemanda í meistaranámi við Háskóla Íslands. Verkefnið snýst um fæðu hornsíla (Gasterosteus aculeatus) og hugsanleg áhrif sílanna á samfélagsgerð smálífvera. Verkefnið er launað að hluta til en auk þess er ráðgert að sækja um styrk til þess. nánar -> |
 |
 |
| 8. febrúar 2008 |
|
 |
 Í kjölfar gróðureldanna miklu sem geisuðu á Mýrum vorið 2006 hófust strax það ár viðamiklar rannsóknir á brunanum og áhrifum eldanna á vistfræði svæðisins. Náttúrufræðistofa Kópavogs sér um rannsóknir á vatnsgæðum og vatnalífríki en um aðra þætti sjá Náttúrufræðistofnun Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskóli Íslands. Nýjustu rannsóknaniðurstöður á eðlis- og efnaþáttum frá sumrinu 2007 liggja nú fyrir hjá Náttúrufræðistofunni. nánar -> |
 |
 |
| 29. desember 2007 |
|
 |
 Nú um jólin hafa fréttir birst í fjölmiðlum af heimsóknum haftyrðla til mannabyggða á nokkrum stöðum á landinu. Morgunblaðið greindi frá því s.l. Fimmtudag að sést hafi til fimm haftyrðla á jóladag í Fjarðará í botni Siglufjarðar. Morgunblaðið og Fréttablaðið greindu einnig frá því s.l. Fimmtu- og föstudag að á aðfangadag hafi hundur í Vestmannaeyjum fært heimafólki sínu að gjöf lifandi haftyrðil sem hann fann úti á lóð.
Nýjasti fundurinn á haftyrðli um þessi jól var svo síðastliðinn föstudag, 28. desember 2007, þegar íbúi í Brekkutúni í Kópavogi rakst á haftyrðil inni í bifreiðinni sinni! nánar -> |
 |
 |
| 19. desember 2007 |
|
 |
 Starfsfólk Náttúrufræðistofu Kópavogs óskar gestum safnsins, velunnurum þess, samstarfsaðilum sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Bestu þakkir fyrir samveruna og samvinnuna á árinu sem er að líða.
Sjáumst heil á nýja árinu!
Náttúrufræðistofan og Bókasafnið verða lokuð dagana 23.12. til 26.12. næstkomandi. Á gamlaársdag er opið frá kl. 10:00 til kl. 12:00 en lokað er á nýársdag.
nánar -> |
 |
 |
| 6. desember 2007 |
|
 |
 Á Náttúrufræðistofunni hefur skapast sú hefð að í stað hefðbundinna jólaskreytinga setja gripir safnsins upp jólasveinahúfur. Þetta gefur safninu hlýlegan og jólalegan svip og vekur ævinlega mikla lukku, sérstaklega hjá yngri gestum safnsins.
Undanfarna daga hefur sést til jólakattarins í safnahúsinu, en eins og flestir vita þá eiga þeir sem ekki fá nýja flík fyrir jólin á hættu að lenda í klóm hans. Því eru jólahúfurnar sérlega mikilvægar að þessu sinni því engin vill að safngripir stofunnar lendi í jólakettinum. nánar -> |
 |
 |
| 5. desember 2007 |
|
 |
 Á Náttúrustofuþingi í Bolungarvík þ. 21. nóvember s.l. Var undirritaður samningur um samstarf í rannsóknum á náttúrufari landsins milli Náttúrufræðistofu Kópavogs og Samtaka náttúrustofa. Samskonar samningur var einnig undirritaður milli Veiðimálastofnunar og Samtaka náttúrustofa. nánar -> |
 |
 |
| 29. nóvember 2007 |
|
 |

Laugardaginn 1. desember verður haldin jólahátíð í Kópavogi á Hálsatorgi. Fjölmargt verður í boði; laufabrauðsbakstur, jólasöngvar, ævintýri um Jólaköttinn og kveikt verður á vinarbæjarjólatré Kópavogs frá Norrköping í Svíþjóð.
Í Safnahúsinu bjóða Bókasafnið og Náttúrufræðistofan upp á ævintýri um Jólaköttinn fyrir 4-6 ára krakka. Einnig verður boðið upp á leiðsögn um Náttúrufræðistofuna þar sem m.a. Verður sagt frá nýjasta safngripnum, risastórri furusneið. nánar -> |
 |
 |
| 19. nóvember 2007 |
|
 |
 Krökkum á leikskólaaldri er boðið á jólaævintýri í Safnahúsinu, Hamraborg 6a, dagana 3.-7. desember og 10.-14. desember 2007. Boðið er upp á tvo ævintýratíma, kl. 10:00 og 11:00. Heimsóknin varir í um 45 mínútur.
Vinsamlega pantið tíma í síma 570 0450. nánar -> |
 |
 |
| 23. október 2007 |
|
 |
 Nýr flækingsfugl hefur bæst við fuglasafn Náttúrufræðistofunnar. Þetta er skógarsnípa (Scolopax rusticola) af snípuætt (Scolopacidae). Skógarsnípur flækjast árlega hingað til lands frá Evrópu og hafa líklega gert það um langan tíma. Hún mun fyrst hafa sést hér á landi árið 1894. Skógarsnípurnar koma hingað aðallega á haustin og dvelja jafnan yfir veturinn í skóglendi. nánar -> |
 |
 |
| 16. október 2007 |
|
 |
 Nýjasti sýningargripurinn í fórum Náttúrufræðistofunnar er í senn mikill um sig og einkar áhugaverður. Þetta er liðlega tveggja metra breið sneið af rauðviði (strandfuru), þjóðargjöf Bandaríkjamanna til Íslendinga árið 1985 í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1974. Sneiðin hefur lengst af verið til sýnis í Háskólabíói en verður nú um sinn á Náttúrufræðistofunni. nánar -> |
 |
 |
| 16. október 2007 |
|
 |
 Í vor sem leið hófst vöktun á vatnsgæðum og lífríki Þingvallavatns og stýrir Náttúrufræðistofa Kópavogs verkefninu. Um er að ræða samstarf milli Þjóðgarðsins á Þingvöllum, Umhverfisstofnunar, Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur. Auk Náttúrufræðistofunnar koma Jarðvísindastofnun Háskólans og Veiðimálastofnun að verkefninu. nánar -> |
 |
 |
| 30. september 2007 |
|
 |
 Nú um helgina barst Náttúrufræðistofu Kópavogs í annað skipti svokallaður pardussnigill (Limax maximus). Það er athyglisvert við þennan fund að finnandinn var sá sami og síðast og einnig var um sama fundarstað í Hafnarfirði að ræða. nánar -> |
 |
 |
| 10. september 2007 |
|
 |
 Kópavogsbær stendur fyrir Kínverskri menningarhátíð dagana 29. september til 7. október í samvinnu við sendiráð Kína, lista- og menningarstofnanir í Kópavogi og fleiri samstarfsaðila. Fjölbreytt dagskrá menningarviðburða verður í boði sem hægt er að kynna sér hér. Í Safnahúsinu standa Náttúrufræðistofan og Bókasafnið fyrir margvíslegum atburðum. nánar -> |
 |
 |
| 9. september 2007 |
|
 |
 Þessi stóri og rauðleiti snigill var gripinn við þröskuld einn í Kópavogi. Hann var handtekinn og fluttur til greiningar á Náttúrufræðistofuna. Líklega er um að ræða spánarsnigill (Arion lusitanicus) sem tilheyrir ættinni Arionidae, en það eru sniglar sem ekki hafa kuðung. Snigillinn verður fyrst um sinn til sýnis á Nátturufræðistofunni. nánar -> |
 |
 |
| 31. ágúst 2007 |
|
 |
 Prófessor Paul Alan Cox, kunnur umhverfisverndarsinni og virtur plöntuvistfræðingur og fræðamaður um grasnytjar eyjaskeggja kom í óvænta heimsókn á Náttúrufræðistofuna miðvikudaginn 29. ágúst s.l. Með í för voru dr. Tatsuya Togashi frá Japan, og Benedikt Sigurbjörnsson og Guðrún Kristjánsdóttir, góðvinir dr. Cox í tengslum við fyrirtækið Nu Skin Enterprises. nánar -> |
 |
 |
| 28. ágúst 2007 |
|
 |
 Þeir sem leið hafa átt um Borgarholtsbraut í Kópavogi hafa líklega tekið eftir því að útlit Borgarholtsins hefur breyst töluvert í sumar. Ásýnd holtsins hefur færst nær því horfi þegar það var friðlýst árið 1981. Þetta er afrakstur af aðgerð sem bæjarráð Kópavogs samþykkti í febrúar síðastliðnum. Um er að ræða verkefni sem hófst í vor og felst í því að hefta sókn trjágróðurs inn á friðlýst svæði Borgarholts. nánar -> |
 |
 |
| 15. ágúst 2007 |
|
 |
 Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, og Anna Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarkona ráðherra, þáðu boð Náttúrufræðistofu Kópavogs og heimsóttu stofuna síðastliðinn mánudag (13. ágúst 2007). Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður, leiddi þær stöllur um húsakynnin og gerði grein fyrir sýningarstarfi og rannsóknum. nánar -> |
 |
 |
| 8. ágúst 2007 |
|
 |
 Undanfarna daga hefur verið óvenju mikið um brúnleitar bjöllur sem slæðast inn í hús heimilisfólki til nokkurs ama. Um er að ræða ranabjöllur, sennilega svokallaðan trjákepp (Otiorhynchus singularis). nánar -> |
 |
 |
| 8. ágúst 2007 |
|
 |
 Þau eru æði misjöfn erindin sem berast Náttúrufræðistofunni þessa dagana. Óvenju margar tilkynningar hafa borist um fágæt dýr. Þar á meðal um sjaldgæf svarmfiðrildi, svartar blaðlýs, silakeppi, blóðsugur og síðast en ekki síst, tilkynning um lifandi frosk. nánar -> |
 |
 |
| 17. júlí 2007 |
|
 |
 Verið er að leggja lokahönd á uppsetningu nokkurra nýrra gripa sem Náttúrufræðistofan hefur fest kaup á. Hér er um fugla að ræða og meðal þeirra er þessi fallegi toppskarfur sem hér sést með frænda sínum, dílaskarfinum. nánar -> |
 |
|