Náttúrufræðistofa
Forsíða
Þjónusta
Fréttir
Um okkur
Starfsfólk
Fyrirspurn
Tenglar
Safngripir
Fiskar
Fuglar
Lindýr
Spendýr
Skordýr
Steinar
Rannsóknir
Útgefið efni
Alþjóðlegt samstarf
Heimilda- og tegundalistar
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi
Ráðstefnur
Vöktunarverkefni
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna
Yfirstandandi rannsóknir
Fréttir
Fiskur í steini 17. mars 2009

Listamaðurinn Lísa K. Guðjónsdóttir opnar sýningu sína „Fiskur í steini“ í Náttúrufræðistofu Kópavogs fimmtudaginn 19. mars næstkomandi. Frá árinu 2000 hefur Lísa unnið í grjót en það er fyrst nú, á árinu 2009, sem hún sýnir steingerðar höggmyndir sínar opinberlega.



Frá útskrift úr grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1976 vann Lísa mest við ætingu en síðar meira með mónótýpur og var virk í sýningarhaldi innan lands og utan. Hún starfaði einnig sem kennari í mörg ár við sama skóla og þar áður við Myndlistaskólann í Reykjavík. Hún starfar nú sem þjónustufulltrúi í myndlistardeild Listaháskóla Íslands.

Sýningin stendur til 30. apríl.
Athugið að um sölusýningu er að ræða.

Opið er mánudaga til fimmtudaga kl 10-20, föstudaga kl 11-17, og laugardaga og sunnudaga kl 13-17.

Aðgangur er ókeypis – Verið velkomin!
Til baka
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is