|
|
 |
|
 |
 |
 |
Náttúrufræðistofa |
|
|
|
Safngripir |
|
|
|
Rannsóknir |
|
|
 |
 |
 |
|
|
|
|
 |
 |
| Fréttir |
 |
| Svölur í Fossvogi |
15. maí 2009 |
|
Undanfarna daga hafa náttúrufræðistofunni einnig borist fregnir af svölum á Arnarnesi, í Garðabæ og á Seltjarnarnesi. Líklegt er um að ræða fugla sem borist hafa frá Evrópu með stífum, hlýum vindum sem leikið hafa um landið undanfarna daga.
Svölur eru svartar á baki en ljósar á kvið og á neðanverðum vængjum. Á bæjarsvölum er einnig ljós blettur á baki - framan við stél (gump) og stél þeirra er sílt. Á landsvölum, sem einnig sjást oft hér á landi, er stélið mjög djúpsílt eða klofið sökum lengdar ystu stélfjaðranna og svipar nokkuð til kríu. Vængir eru oddmjóir og er fluglag hjá svölum ólíkt fluglagi flestra annarra smáfugla sem sjást hér á landi, þar sem þær eru mjög hraðfleygar en jafnframt flöktandi á flugi. Þær lifa aðallega á skordýrum sem þær veiða á flugi og er talið að þeir lífshættir m.a. geri þeim erfitt um vik að nema hér land. Svölur eru algengir flækingar hér á landi og hafa nokkrum sinnum reynt varp.
Ekki náðust myndir af svölunun í Fossvogi og raunar eru svölur á flugi afskaplega erfitt viðfangsefni til myndatöku. Meðfylgjandi mynd er af uppstoppuðu eintaki í eigu náttúrufræðistofunnar. Á vefsvæðinu www.fuglar.is má meðal annars finna myndir af land- og bæjarsvölum.
|
| |
|
 |
| Til baka |
 |
|
 |
|
 |
|
|
|
 |
 |
 |
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is
|
 |
|
|