|
|
 |
|
 |
 |
 |
Náttúrufræðistofa |
|
|
|
Safngripir |
|
|
|
Rannsóknir |
|
|
 |
 |
 |
|
|
|
|
 |
 |
| Fréttir |
 |
| Líffræðiráðstefnan 2009 |
10. nóvember 2009 |
|
Ráðstefnan var hin glæsilegasta og voru alls kynnt um 220 framlög í formi erinda og veggspjalda. Á heimasíðu ráðstefnunnar má m.a. nálgast útdrætti allra þessara framlaga. Þar kemur einnig fram að um 390 manns hafi komið að þeim rannsóknum sem kynntar voru. Þátttakendur á ráðstefnunni voru um 250, en til gamans má geta þess að ríflega 1000 manns hafa lokið grunnnámi í líffræði hér á landi.
Eins og áður segir var starfsfólk Náttúrufræðistofu Kópavogs á meðal þátttakenda á ráðstefnunni og hélt fjögur erindi þar sem kynntar voru rannsóknaniðurstöður og nemendaverkefni sem unnið er að á Náttúrufræðistofunni. Þrjú þeirra áttu það sammerkt að umfjöllunarefnið var langtímavöktun í stöðuvötnum, en það fjórða fjallaði um svipfarsrannsóknir á hornsílum. Hér að neðan má nálgast erindin á PDF formi.
Hilmar J. Malmquist fjallaði um hækkandi vatnshita í Elliðavatni, orsakir þessarar hækkunar og fækkun bleikju, sem hefur haldist nokkuð í hendur við hinn hækkandi hita.
Hlýnun Elliðavatns og fækkun bleikju í vatninu (5 MB).
Finnur Ingimarsson fjallaði um vöktunarverkefni sem unnið er að í Þingvallavatni. Þar er fylgst með vatnshita, súrefnismettun og leiðni, ásamt dýra- og þörungasvifi, frá yfirborði og allt niður á 50m dýpi.
Vöktun á lífríki og vatnsgæðum Þingvallavatns (1.4 MB).
Haraldur R. Ingvason fjallaði um vöktun á vatnshita, súrefnismettun, leiðni og blaðgrænu-a í nokkrum vötnum á höfuðborgarsvæðinu.
Vöktun eðlisþátta í vötnum á höfuðborgarsvæðinu (5,5 MB).
Rakel Júlía Sigursteinsdóttir (M.S. nemi) kynnti nokkrar niðurstöður úr rannsóknarverkefni sínu sem lítur að fjölbreytileika í svipgerð hornsíla í íslenskum vötnum.
Hornsíli; ekki bara lítill fiskur með gadda (1,4 MB).
|
| |
|
 |
| Til baka |
 |
|
 |
|
 |
|
|
|
 |
 |
 |
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is
|
 |
|
|