|
|
 |
|
 |
 |
 |
Náttúrufræðistofa |
|
|
|
Safngripir |
|
|
|
Rannsóknir |
|
|
 |
 |
 |
|
|
|
|
 |
 |
| Fréttir |
 |
| Þríhnúkagígur – Hjarta Eldfjallagarðs |
11. nóvember 2009 |
|
Dagskrá kynningarinnar í Salnum miðvikudaginn 18. nóvember er eftirfarandi:
Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri setur kynninguna
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra flytur ávarp
Árni B. Stefánsson hellakönnuður og upphafsmaður verkefnisins flytur ávarp
Einar K. Stefánsson verkfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf og umsjónarmaður verkefnisins flytur kynningarerindi
Veitingar
Helstu styrktaraðilar verkefnisins eru Alþingi, Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Orkuveita Reykjavíkur, umhverisráðuneytið, samgönguráðuneytið og Burðarás.
Allir eru velkomnir!
Í kjölfarið á kynningunni í Salnum verður opnuð sýning í anddyri Náttúrufræðistofunnar þar sem hægt verður að kynna sér verkefnið í máli og myndum.
Náttúrufræðistofan hefur komið að þessu málefni í þrígang áður. Fyrst árið 2004 þegar hugmynd Árna B. Stefánssonar var kynnt með sýningu í anddyri Náttúrufræðistofunnar. Næst árið 2008 þegar Einar K. Stefánsson hélt fræðsluerindi í Kórnum og efnt var til gönguferðar á Þríhnúkagíg. Þriðja skiptið var í vor sem leið þegar gengið var á Þríhnúkagíg og næsta umhverfi.
Nánari upplýsingar um hugmyndir að nýtingu Þríhnúkagígs er að finna á heimasíðu VSÓ Ráðgjafar.
|
| |
|
 |
| Til baka |
 |
|
 |
|
 |
|
|
|
 |
 |
 |
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is
|
 |
|
|