Náttúrufræðistofa
Forsíða
Þjónusta
Fréttir
Um okkur
Starfsfólk
Fyrirspurn
Tenglar
Safngripir
Fiskar
Fuglar
Lindýr
Spendýr
Skordýr
Steinar
Rannsóknir
Útgefið efni
Alþjóðlegt samstarf
Heimilda- og tegundalistar
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi
Ráðstefnur
Vöktunarverkefni
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna
Yfirstandandi rannsóknir
Fréttir
Ný tegund fyrir landið??? 20. janúar 2010

Þetta mál á að vísu nokkra forsögu. Árið 2008 gerði Náttúrufræðistofan rannsókn á lífríki Bakkatjarnar fyrir Seltjarnarnesbæ. Í þeirri rannsókn fundust m.a. framandleg söðulhýði í nokkru magni, en söðulhýði er þolhjúpur sem umlykur dvalaregg vatnaflóa. Þrátt fyrir marg endurtekna sýnatöku fundust hins vegar engar vatnaflær sem gátu átt þessi söðulhýði. Einkennandi fyrir þessi tilteknu söðulhýði er annars vegar stærð þeirra (um 2 mm, sem er stórt í heimi vatnaflóa) og hins vegar langir og grannir sporar sem ganga fram úr þeim (sjá mynd) og eru alþaktir örsmáum afturvísandi göddum.


Ekki þarf að orðlengja það að hér voru komnar vatnaflærnar sem hin framandlegu söðulhýði tilheyrðu. Mest veiddist af kvendýrum og voru sum þeirra með söðulhýði, eins og dýrið á myndinni hér að neðan og voru söðulhýðin á mismunandi þroskastigum. Einnig fundust nokkur karldýr. Í fyrstu vaknaði rökstuddur grunur um að tegundin væri ný fyrir landið, en nánari greining bendir til að um sé að ræða náskylda og nauðalíka tegund „Daphnia atkinsoni“, sem m.a. hefur fundist á Langanesi og í Grímsey - í smá pollum og tjörnum - sem eru mjög sérstök búsvæði, stundum kölluð fuglaböð.


Hvernig stendur svo hinni miklu mergð þessarar tegundar í Bakkatjörn og það á þessum árstíma? Væntanlega er meginskýringin hið mikla fuglalíf við tjörnina, en söðulhýði þessarar tegundar eru eins og áður segir sérlega vel búin til að húkka sér far í bókstaflegri merkingu, t.d. með fuglum. Jafnframt fylgir fuglalífinu mikil ákoma næringarefna, en þrátt fyrir takmarkaða birtu á þessum árstíma var mikill svifþörungagróður í tjörninni.

Svo virðist sem þetta þörungasvif sé kjörfóður vatnaflónna, ef marka má magainnihald þeirra. Hins vegar er þörungasvif í Bakkatjörn síst minna að sumarlagi þannig að það skýrir ekki fjarveru þeirra á áðurnefndu rannsóknartímabili árið 2008.

Skýrsluna um lífríki Bakkatjarnar má nálgast á PDF formi hér að neðan (10,4 MB)

GRUNNRANNSÓKN Á LÍFRÍKI BAKKATJARNAR Á SELTJARNARNESI. Unnið fyrir fyrir Umhverfisnefnd Seltjarnarnesbæjar. Mars 2009. 30 bls.

Til baka
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is