|
|
 |
|
 |
 |
 |
Náttúrufræðistofa |
|
|
|
Safngripir |
|
|
|
Rannsóknir |
|
|
 |
 |
 |
|
|
|
|
 |
 |
| Fréttir |
 |
| Kópavogsdagar 2010 |
3. maí 2010 |
|
Dagskrá Kópavogsdaga árið 2010 hjá Náttúrufræðistofunni.
Fljúga hvítu fiðrildin Laugardaginn 8. maí kl. 13:00 Staður: Náttúrufræðistofa Kópavogs.

Opnun á sýningu um flækingsfiðrildi á Íslandi í anddyri Náttúrufræðistofunnar. Sýndar verða helstu flækingstegundirnar og upplýsingar veittar um uppruna og líffræði þessara skrautlegu skammtímagesta landsins. Sýningin stendur fram á haust.
Freyja fisdægra Mánudag 10. maí–14. maí og 17.–21. maí kl. 10:00 og 11:00. Staður: Náttúrufræðistofa og Bókasafn Kópavogs.

Ævintýri sniðið fyrir börn á leikskólaaldri um litlar flugur og líf þeirra. Fróðleikur í máli og myndum fluttur í Kórnum og barnadeild Bókasafnsins. Flutt tvisvar á dag, kl. 10:00 og 11:00. Ævintýrið verður einnig haldið vikuna 17. til 21. maí á sama tíma.
Litlar flugur – stórt hlutverk Miðvikudaginn 12. maí kl. 12:15–13:00 Staður: Náttúrufræðistofa Kópavogs, Kórinn, fyrirlestrarsalur.

Þóra Hrafnsdóttir líffræðingur á Náttúrufræðistofunni flytur erindi um rykmý á Íslandi og byggir á eigin rannsóknum og gögnum í fórum Náttúrufræðistofunnar. Fjallað verður um rykmý á Íslandi en þessi hópur skordýra, þrátt fyrir að skipa smávöxnum lífverum, gegnir lykilhlutverki í orkubúskap og vistfræði straum- og stöðuvatna á landinu. Erindið hefst kl 12:15.
Af lifun Laugardaginn 15. maí kl. 15:00. Staður: Náttúrufræðistofa Kópavogs.

Opnun á sýningu Magnúsar Árnasonar í Náttúrufræðistofu Kópavogs. Listir og vísindi eru ólíkar en þó skyldar greinar og hefur saga þeirra oft á tíðum verið samtvinnuð. Á sýningunni eru könnuð tengsl þessara tveggja greina þar sem unnið er út frá sýningarsafni og starfsemi Náttúrufræðistofunnar og veitt innsýn í fegurð hins vísindalega rannsóknarferlis. Með því að varpa ljósi á skörun þessara tveggja greina er ætlað að beina sjónum okkar að flóknu samlífi náttúrunnar og hinu manngerða, staðreyndum sögunnar og skáldskaparins.
Sýningarstjórn er í höndum Kristínar Dagmar Jóhannesdóttur og Hilmars J. Malmquist.
Sýningin stendur til 15. september.
Hér má kynnast verkum Magnúsar Árnasonar.
|
| |
|
 |
| Til baka |
 |
|
 |
|
 |
|
|
|
 |
 |
 |
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is
|
 |
|
|