Náttúrufræðistofa
Forsíða
Þjónusta
Fréttir
Um okkur
Starfsfólk
Fyrirspurn
Tenglar
Safngripir
Fiskar
Fuglar
Lindýr
Spendýr
Skordýr
Steinar
Rannsóknir
Útgefið efni
Alþjóðlegt samstarf
Heimilda- og tegundalistar
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi
Ráðstefnur
Vöktunarverkefni
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna
Yfirstandandi rannsóknir
Fréttir
Sumarnámskeið fyrir 10 - 12 ára börn 19. maí 2010
Í júní verður boðið upp á tvö vikunámskeið í náttúrufræðum fyrir 10–12 ára krakka.
Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu í náttúrufræðum og veita þátttakendum innsýn í vísindaleg vinnubrögð. Farið verður í vettvangsferðir og m.a. rannsakað vatna- og fjörulífríki í Kópavogi og nágrenni. Á rannsóknastofu verða sýni mæld og skoðuð í smásjá og haldnar vinnubækur.

1. Námskeið: 14. – 18. júní (fjórir dagar).
2. Námskeið: 21. – 25. júní.

Námskeiðið stendur yfir milli kl. 10 – 15 hvern dag og mæta þátttakendur með nesti, stígvél og hlífðarföt. Leiðbeinendur verða starfsmenn á Náttúrufræðistofunni.

Innritun fer fram á Náttúrufræðistofu Kópavogs milli kl. 10 og 16 fram til 11. júní. Námskeiðsgjald er 5.600 kr. fyrir fyrri vikuna og 7.000 kr. fyrir þá seinni.

Athugið! Fjöldi þátttakenda takmarkast við 12 krakka á hvoru námskeiði.


Til baka
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is