|
|
 |
 |
|
| 11.3.2010 |
 |
Miðvikudaginn 24. mars næstkomandi verður haldið málþing um jarðminjagarða (Geoparks) á Íslandi í Salnum, Hamraborg 6, Kópavogi. Að málþinginu standa Jarðfræðafélag Íslands, Náttúrustofa Suðurlands, Náttúrustofa Norðurlands vestra, Náttúrustofa Reykjaness, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Aðgangur er ókeypis en þátttöku þarf að tilkynna á netfangið steini@nnv.is fyrir 22. mars. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir og Óskar Bergsson, formaður Borgarráðs ávarpa þingið. Að því loknu flytja ellefu valinkunnir fræðimenn erindi og má sjá dagskrá þingsins í meðfylgjandi skjali. |
 |
|