Náttúrufræðistofa
Forsíða
Þjónusta
Fréttir
Um okkur
Starfsfólk
Fyrirspurn
Tenglar
Safngripir
Fiskar
Fuglar
Lindýr
Spendýr
Skordýr
Steinar
Rannsóknir
Útgefið efni
Alþjóðlegt samstarf
Heimilda- og tegundalistar
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi
Ráðstefnur
Vöktunarverkefni
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna
Yfirstandandi rannsóknir
Þjónusta Náttúrufræðistofu Kópavogs
Náttúrufræðistofa Kópavogs er undir sama þaki og Bókasafn Kópavogs að Hamraborg 6a, steinsnar frá Gerðarsafni og Salnum. Náttúrugripasafnið er opið almenningi mánudaga til fimmtudaga kl. 10.00-19.00, föstudaga kl. 11.00-17.00 og laugardaga kl. 13.00-17.00.

Aðgangur er ókeypis.


Tekið er á móti hópum og leiðsögn veitt eftir samkomulagi við starfsmenn Náttúrufræðistofunnar. Safnið er heppilegt til kennslu og er hér að finna ýmsar upplýsingar og e.t.v. hugmyndir að verkefnum sem gætu hjálpað kennurum að nýta safnið sem best.



Þjónustuverkefni fyrir stofnanir og sveitarfélög hafa verið mikilvægur þáttur í starfsemi stofunnar á undanförnum árum. Þar hefur aðallega verið um að ræða lífríkisrannsóknir í ferskvatni og má sem dæmi nefna eins árs vöktun á lífríki Elliðavatns, og forkannanir á lífríki Rauðavatns og Urriðavatns. Frekar má fræðast um þessi verkefni með því að smella á tenglana hér til hliðar.

Hafi menn hug á að fá Náttúrufræðistofunna til liðs við sig varðandi slík verkefni er best að snúa sér beint til forstöðumanns hennar, Hilmars Malmquist.
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is