Náttúrufræðistofa
Forsíða
Þjónusta
Fréttir
Um okkur
Starfsfólk
Fyrirspurn
Tenglar
Safngripir
Fiskar
Fuglar
Lindýr
Spendýr
Skordýr
Steinar
Rannsóknir
Útgefið efni
Alþjóðlegt samstarf
Heimilda- og tegundalistar
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi
Ráðstefnur
Vöktunarverkefni
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna
Yfirstandandi rannsóknir
Um okkur
Náttúrufræðistofa Kópavogs var opnuð í desember 1983. Hlutverk Náttúrufræðistofunnar er að safna, varðveita og sýna náttúrugripi, standa að fræðslu og rannsóknum í náttúrufræðum og stuðla að náttúru- og umhverfisvernd. Árni Waag var ráðinn fyrsti forstöðumaður stofunnar, en núverandi forstöðumaður er Hilmar J Malmquist og tók hann við starfi af Árna árið 1992.

Tilurð Náttúrufræðistofu Kópavogs má rekja til kaupa Kópavogsbæjar á skeldýrasafni Jóns Bogasonar en hann hafði um langt skeið safnað skeldýrum meðfram störfum sínum sem rannsóknamaður hjá Hafrannsóknastofnun. Er þetta skeldýrasafn einn kjarni í náttúrugripasafni Náttúrufræðistofunnar. Á tímum Árna Waag myndaðist einnig töluvert fuglasafn og á síðustu árum hefur einnig orðið til gott safn af berg- og steintegundum.

Í maí 2002 fluttist Náttúrufræðistofa Kópavogs í hið nýja safnahús að Hamraborg 6a og deilir því með Bókasafni Kópavogs. Húsið er sambyggt Salnum í Kópavogi, við hlið Gerðarsafns. Staðsetningin er sérlega góð m.t.t. strætisvagna, en aðeins eru fáein skref að skiptistöðinni við Hamraborg. Húsnæði Náttúrufræðistofunnar er hið fyrsta á landinu sem er hannað frá grunni fyrir náttúrufræðisafn og gerbreytir sýningaraðstöðu á safnmunum og stórbætir möguleika á allri þjónustu. Rannsókna- og vinnuaðstaða fyrir starfsmenn er mjög góð og sama er að segja um aðstöðu til að taka á móti hópum og skólafólki, til dæmis vegna kennslu í náttúrufræðum.

Kópavogsbær hefur staðið að rekstri stofunnar, en einnig hefur hún aflað verulegra sértekna. Um þetta og margt fleira má fræðast í ársskýrslum stofunnar. Í kjölfar breytinga á starfsemi með tilkomu hins nýja húsnæðis, var ný stofnskrá fyrir Náttúrufræðistofuna samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs í febrúar 2003 .

Hér er að finna stofnskrá Náttúrufræðistofu Kópavogs ásamt ársskýrslum frá árinu 1993.

Rannsóknir eru stór hluti af starfsemi Náttúrufræðistofunnar og eru þær einkum á sviði vatnavistfræði. Meðal verkefna sem unnið hefur verið að má telja:
-Yfirlitskönnun á lífríki íslenskra vatna,
-Vöktun á murtustofninum í Þingvallavatni,
-Vistfræði skötuormsins,
-Umhverfisúttekt á Ástjörn og Hamarskotslæk í Hafnarfirði fyrir Hafnarfjarðarbæ,
-Úttekt á vatnalífríki á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar fyrir Landsvirkjun og Náttúrufræðistofnun Íslands,
-Vöktun á lífríki Elliðavatns fyrir Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ.

Þá eru einnig í gangi rannsóknaverkefni sem tengjast framhaldsnámi í líffræði til masters og doktorsgráðu. Hér má fræðast frekar um þessi verkefni.

Á náttúrufræðistofunni hefur einnig verið aðsetur eftirlitsráðgjafa Náttúruverndar ríkisins og hefur Hilmar forstöðumaður gengt því starfi.
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is