Náttúrufræðistofa
Forsíða
Þjónusta
Fréttir
Um okkur
Starfsfólk
Fyrirspurn
Tenglar
Safngripir
Fiskar
Fuglar
Lindýr
Spendýr
Skordýr
Steinar
Rannsóknir
Útgefið efni
Alþjóðlegt samstarf
Heimilda- og tegundalistar
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi
Ráðstefnur
Vöktunarverkefni
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna
Yfirstandandi rannsóknir
Heimilda- og tegundalistar
Hér er ætlunin að birta heimilda- og tegundalista sem teknir hafa verið saman í tengslum við hin margvíslegustu verkefni eða málaflokka.

Rykmý á Íslandi

Hér er að finna samantekt heimilda um rannsóknir á rykmýi, auk tegundalista og korts sem sýnir söfnunarstaði rykmýs. Efnið byggir í megindráttum á rykmýshefti ritraðarinnar Zoology of Iceland sem kom út árið 2005. Höfundur er Þóra Hrafnsdóttir, líffræðingur og starfsmaður á Náttúrufræðistofu Kópavogs, en verkið vann hún að mestu leyti á Náttúrufræðistofnun Íslands. Heftið má nálgast hjá höfundi.

Í rykmýsheftinu birtist nýtt, uppfært tegundatal fyrir rykmý sem byggist á yfirgripsmikilli rannsókn á tegundafjölbreytileika og útbreiðslu þess hérlendis. Nú eru þekktar 80 tegundir af rykmýi á landinu, þar af eru 20 tegundir nýjar fyrir landið. Rykmýsfána Íslands er hlutfallslega tegundafá miðað við fánu nágrannalandanna og má skýra það með landfræðilegri einangrun landsins og norðlægri legu þess. Aftur á móti er fjölbreytileiki rykmýs hér á landi mun meiri en annarra hópa vatnadýra sem algengir eru í ferskvatni í Evrópu. Í ritinu er, auk tegundatals, að finna útbreiðlsukort fyrir hverja tegund, svo og upplýsingar um helstu búsvæði tegundanna.

© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is