Náttúrufræðistofa Kópavogs er í samstarfi við fræðimenn og vísindastofnanir erlendis. Hér að neðan er hægt að fræðast um þátttöku Náttúrufræðistofunnar í alþjóðlegum samstarfsverkefnum.
NORLAKE er Norrænt rannsóknarverkefni sem hófst 1999. Meginmarkmið verkefnisins er að svara spurningum um áhrif breytileika og breytinga í loftslagi og landnýtingu á vatnavistkerfi á norðurslóð, þ. á m. áhrif á orkuflæði og líffræðilega fjölbreytni í vötnunum.
Í febrúar 2004 var hleypt af stokkunum fimm ára rannsóknaverkefni á vegum Evrópusambandsins. Markmið þess er að meta áhrif hnattrænna breytinga á vistkerfi ferskvatna í Evrópu. Alls taka 37 stofnanir frá 19 löndum þátt í verkefninu, þ.m.t. Náttúrufræðistofa Kópavogs.