|
|
 |
|
 |
 |
 |
Náttúrufræðistofa |
|
|
|
Safngripir |
|
|
|
Rannsóknir |
|
|
 |
 |
 |
|
|
|
|
 |
 |
| Útgefið efni |
 |
Hér er hægt að nálgast útgefið efni af ýmsu tagi sem Náttúrufræðistofan hefur komið að. Hér er einnig að finna samantekt á helstu rannsóknum, þar sem m.a. er að finna veggspjöld (postera) sem kynnt hafa verið á ráðstefnum hér heima og erlendis.
|
 |
 |
|
|
|
Árið 1998 var haldin í Dublin á Írlandi, XXVII ráðstefna alþjóðlegra samtaka vatnalíffæðinga (SIL- Societas Internationalis Limnologiae). Þar voru flutt erindi um rannsóknir sem Náttúrufræðistofan stendur að.
|
 |
 |
|
|
|
Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma er umfangsmikið verkefni sem hófst árið 1999 að undirlagi ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. Markmið verkefnisins er að leggja mat á og flokka virkjunarkosti, jafnt hvað varðar vatnsafl og jarðvarma, með tilliti til orkugetu, hagkvæmni, áhrifa á náttúrufar, náttúru- og menningarminjar, svo og hagsmuni allra þeirra sem nýta þessi sömu gæði.
|
 |
 |
|
|
|
Árið 2004 var haldin XXIX ráðstefna alþjóðlegra samtaka vatnalíffæðinga (SIL- Societas Internationalis Limnologiae). Á Ráðstefnunni, sem var haldin í Lahti í Finnlandi, voru flutt erindi og veggspjöld kynnt um rannsóknir sem Náttúrufræðistofan stendur að. Þarna var um að ræða eina stærstu ráðstefnu heims um vatnalíffræði, en liðlega eitt þúsund manns skráðu sig til þáttöku.
|
 |
 |
|
|
|
Greinargerð þessi er unnin að beiðni Orkuveitu Reykjavíkur í tengslum við fyrirspurn Veiðifélags Skorradalsvatns til Náttúrufræðistofu Kópavogs um hugsanleg áhrif vatnsmiðlunar Andakílsárvirkjunar á vatnalífríki Skorradalsvatns.
|
 |
 |
|
|
|
Daganna 9-12 nóvember var haldin í Reykjavík alþjóðleg ráðstefna á vegum ACIA (Arctic Climate Impact Assessment). Þar var fjallað um umhverfis- og loftslagsbreytingar, með áherslu á norðurheimskautið og aðlæg svæði.
|
 |
 |
|
|
|
Í október 2001 kom út skýrsla um rannsóknir Náttúrufræðistofunnar á dýralífi og efnafræði í Hamarkostlæk og Ástjörn sem unnin var fyrir Hafnarfjarðarbæ á tímabilinu maí 2000 til apríl 2001.
|
 |
 |
|
|
|
Áhrif fyrirhugaðrar Kárahnjúkavirkjunar ásamt Laugarfellsveitu, Bessastaðaárveitu, Jökulsárveitu, Hafursárveitu og Hraunaveitum á vistfræði vatnakerfa. Skýrsla um rannsóknir vegna umhverfismats Kárahjúkavirkjunar, unnin í samvinnu við Líffræðistofnun Háskólans og Veiðimálastofnun. Hún kom út í apríl 2001.
|
 |
 |
|
|
|
NORLAKE er Norrænt rannsóknarverkefni sem hófst 1999. Meginmarkmið verkefnisins er að svara spurningum um áhrif breytileika og breytinga í loftslagi og landnýtingu á vatnavistkerfi á norðurslóð, þ. á m. áhrif á orkuflæði og líffræðilega fjölbreytni í vötnunum.
|
 |
 |
|
|
|
Ráðstefnan stóð í tvo daga og tókst afar vel. Haldnir voru um 80 fyrirlestrar, auk 8 yfirlitserinda. Þessu til viðbótar voru rannsóknaverkefni kynnt á um 130 veggspjöldum.
|
 |
 |
|
|
|
Um var að ræða forkönnun á lífríki og vistkerfi Urriðavatns, sem unnin er að beiðni Alta ehf. í tengslum við yfirstandandandi skipulagsvinnu í landi Urriðaholts í Garðabæ. Í skipulagsvinnunni er lögð áhersla á að vatnið verði miðpunktur í aðlaðandi og aðgengilegu útivistarlandi.
|
 |
 |
|
|
|
Helstu markmið rannsóknarinnar, sem unnin var að beiðni Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar, voru að afla grunnþekkingar á lífríki og efnabúskap Rauðavatns og draga upp sem gleggsta mynd af gerð og eðli vistkerfis vatnsins, bæði í tíma og rúmi. Sýni voru því tekin á mismunandi stöðum í vatninu og á mismunandi árstímum.
|
 |
 |
|
|
|
Fyrri hluta sumars 2007 hófust rannsóknir á lífríki og umhverfisþáttum í Hafravatni. Um var að ræða all viðamikla úttekt á ástandi vatnsins, dýralífi og gróðurfari. Rannsóknin var unnin af Náttúrufræðistofu Kópavogs fyrir Heilbrigðiseftirlit Kjósasvæðis, en Reykjavíkurborg kom einnig að rannsókninni.
|
 |
 |
|
|
|
Ástand Reykjavíkurtjarnar m.t.t. örvera og efna- og eðlisþátta var kannað á tímabilinu maí 2007–apríl 2008 og vatnsgæði tjarnarinnar metin og tjörnin mengunarflokkuð í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns.
|
 |
 |
|
|
|
Vistkerfi Bakkatjarnar á Seltjarnarnesi var rannsakað á tímabilinu maí–október 2008 á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs fyrir umhverfisnefnd Seltjarnarnesbæjar. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að afla grunnupplýsinga um lífríki og efna- og eðlisþætti Bakkatjarnar. Rannsókn af þessu tagi hefur ekki áður farið fram í Bakkatjörn.
|
 |
|
 |
|
 |
|
|
|
 |
 |
 |
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is
|
 |
|
|