"Yfirlitskönnun á lífríki íslenskra vatna: samræmdur gagnagrunnur" (gjarna kallað vatnaverkefnið) er eitt viðamesta verkefni náttúrufræðistofunnar. Það hófst árið 1992 og er samstarfsverkefni fjögurra stofnana sem eru auk náttúrufræðistofunnar, Líffræðistofnun Háskóla Íslands, Hólaskóli í Hjaltadal og Veiðimálastofnun. Ýmsa aðrar stofnanir og einstaklingar hafa einnig komið að verkefninu, á afmörkuðum fræðasviðum.
Nú hefur gögnum verið safnað með samræmdum hætti úr um 80 vötnum sem eru dreifð um allt land. Frumúrvinnslu er að mestu lokið en eftir er töluverð vinna við fíngreiningar. Þá eru fjölmargir möguleikar á ýmiskonar samanburðarrannsóknum. Mikið af þeirri vinnu sem eftir er, mundi henta sem námsverkefni (bæði stór og smá) fyrir áhugasama líffræðinema.
Verið er að endurskipuleggja rannsóknahluta heimasíðu natkop
Margvíslegar upplýsingar um verkefnið s.s. um markmið og rannsóknaaðferðir, auk lista yfir þau vötn sem þegar hafa verið rannsökuð, er að finna hér að neðan.