Náttúrufræðistofa
Forsíða
Þjónusta
Fréttir
Um okkur
Starfsfólk
Fyrirspurn
Tenglar
Safngripir
Fiskar
Fuglar
Lindýr
Spendýr
Skordýr
Steinar
Rannsóknir
Útgefið efni
Alþjóðlegt samstarf
Heimilda- og tegundalistar
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi
Ráðstefnur
Vöktunarverkefni
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna
Yfirstandandi rannsóknir
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi

Um þessar mundir vinna þrír nemendur að rannsóknarnámsverkefnum í tengslum við Náttúrufræðistofu Kópavogs og byggja öll verkefnin á gögnum úr rannsóknarverkefninu Yfirlitskönnun á lífríki íslenskra vatna, gjarnan kallað "Vatnaverkefnið".

Rykmý gegnir aðalhlutverkinu í tveimur verkefnum enda er það eitt af algengustu smádýrum í straum- og stöðuvötnum á Íslandi. Í þriðja verkefninu er sjónum beint að hornsílum og er ætlunin að kanna samband umhverfis og svipgerðar sílanna.

Hér að neðan er fjallað nánar um þessi rannsóknaverkefni, en að auki er greint frá verkefnum sem lokið er, eða tengjast náið þeim verkefnum sem í gangi eru.

Rykmý í fjöruvist íslenskra stöðuvatna
Erlín E. Jóhannsdóttir vinnur að ofangreindu rannsóknarverkefni til MS gráðu við Háskóla Íslands.
Samfélög og lífveruleifar rykmýs í stöðuvötnum á Íslandi
Þóra Hrafnsdóttir vinnur að ofangreindu verkefni til doktorsgráðu við háskólann í Exeter í Bretlandi. Meginmarkmið þess er að kanna og bera saman samfélög og lífveruleifar rykmýs í botnvist íslenskra stöðuvatna og tengsl þeirra við helstu umhverfisþætti.
Doktorsverkefni Dr. Tammy Karst
Nýlega er lokið doktorsverkefni Dr. Tammy Karst við Queen´s University í Kingston, Ontario, Canada sem einnig byggði á efnivið úr vatnaverkefninu. Doktorsverkefni Tammy snérist um greiningu á kísilþörungum úr efsta lagi setkjarna, sem teknir voru úr dýpstu hlutum vatnanna.
Íslenska rykmýsfánan: fjölbreytileiki og útbreiðsla
Samkvæmt nýrri samantekt á rykmýsfánu landsins eru tegundirnar nú 80 talsins. Þessar upplýsingar er að finna í mastersritgerð Þóru Hrafnsdóttur, sem hefur verið send til birtingar í ritröðinni The Zoology of Iceland. Fullvíst má telja að fleiri tegundir komi í ljós á næstu árum með auknum rannsóknum.
Tengsl umhverfis við svipfar og þróun útlits hornsíla í stöðuvötnum
Rakel Júlía Sigursteinsdóttir vinnur að verkefninu til mastersgráðu við Háskóla Íslands og Hólaskóla, háskólann á Hólum. Í verkefninu verður leitast við að svara hvaða umhverfisþættir það eru í stöðuvötnum Íslands sem helst ráða útliti hornsíla.
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is