Náttúrufræðistofa
Forsíða
Þjónusta
Fréttir
Um okkur
Starfsfólk
Fyrirspurn
Tenglar
Safngripir
Fiskar
Fuglar
Lindýr
Spendýr
Skordýr
Steinar
Rannsóknir
Útgefið efni
Alþjóðlegt samstarf
Heimilda- og tegundalistar
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi
Ráðstefnur
Vöktunarverkefni
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna
Yfirstandandi rannsóknir
Vöktunarverkefni
Náttúrufræðistofa Kópavogs hefur í gegn um tíðina tekið þátt í vöktunarverkefnum sem snerta ýmis svið vatnalíffræðinnar. Með hugtakinu vöktun (monitoring) er átt við reglulega sýnatöku og/eða mælingu á tilteknum þætti/þáttum í langan tíma (a.m.k. nokkur ár).

Þátturinn sem vaktaður er þarf að vera mikilvægur í viðkomandi kerfi og helst fremur auðveldur og hagkvæmur að fylgjast með. Hér að neðan má finna frekari umfjöllun um þau vöktunarverkefni sem Náttúrufræðistofan hefur komið að.

Þingvallamurta
Murta er eitt af fjórum afbrigðum bleikjunnar (Salvelinus alpinus) sem finnast í Þingvallavatni. Í samstarfi við dr. Sigurð S. Snorrason hjá Líffræðistofnun Háskólans hefur hrygningarstofn murtunnar í Þingvallavatni verið vaktaður í rúm tuttugu ár.
Vistfræði skötuormsins
Rannóknarverkefnið Vistfræði skötuormsins (Lepidurus arcticus (Pallas)) er verkefni sem unnið er í samstarfi við Þorleif Eiríksson hjá Náttúrustofu Vestfjarða og Hrefnu Sigurjónsdóttur hjá Kennaraháskóla Íslands
Vöktun á lífríki Elliðavatns
Náttúrufræðistofan sá um könnun á lífríki Elliðavatns, sem fór fram á árunum 2002-2003. Hún beindist aðallega að krabbadýrum, bæði botnlægum og sviflægum, en einnig var fylgst með vatnshita, sýrustigi og fleiri þáttum. Verkefnið varð kveikjan að vöktun eðlisþátta í vötnum á höfuðborgarsvæðinu.
Vöktun eðlisþátta í vötnum á höfuðborgarsvæðinu
Náttúrufræðistofa Kópavogs stendur nú fyrir reglulegri vöktun á eðlisþáttum í nokkrum stöðuvötnum á höfuðborgarsvæðinu. Fylgst er með hita, sýrustigi (pH) og leiðni á nokkrum stöðum í hverju þeirra.
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is