Náttúrufræðistofa
Forsíða
Þjónusta
Fréttir
Um okkur
Starfsfólk
Fyrirspurn
Tenglar
Safngripir
Fiskar
Fuglar
Lindýr
Spendýr
Skordýr
Steinar
Rannsóknir
Útgefið efni
Alþjóðlegt samstarf
Heimilda- og tegundalistar
Rannsóknaverkefni tengd framhaldsnámi
Ráðstefnur
Vöktunarverkefni
Yfirlitskönun á lífríki íslenskra vatna
Yfirstandandi rannsóknir
Skordýr
Hér er um lang stærsta flokk dýraríkisins að ræða en hann telur um 1.000.000 tegundir eða 3/4 allra þekktra núlifandi dýrategunda.
Náttúrufræðistofa Kópavogs á nokkurt safn skordýra af hinum ýmsu ættbálkum. Unnið er að því að koma þessum hluta safnsins í sýningarhæft ástand og mun þessi síða aðallega miðast við það sem til sýnis verður. Þangað til verður þessari síðu haldið úti til bráðabirgða. Vissulega vantar upplýsingar um fjölmarga hópa, en úr því verður bætt þegar færi gefst.

Helstu heimildir:
Stóra skordýrabók Fjölva. Höf: V.J. Stanek (Þorsteinn Torarensen þýddi og staðfærði). Útg. Fjölvi 1974.
Rit Landverndar nr. 9 - Pöddur. Ritstj: Hrefna Sigurjónsdóttir og Árni Einarsson. Útg. Landvernd 1989.
Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 17 - Íslenskt skordýratal. Höf: Erling Ólafsson. Útg. Náttúrufræðistofnun Íslands 1991.
Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 32 - Fiðrildi á Íslandi 1995. Höf: Erling Erling Ólafsson og Hálfdán Björnsson. Útg. Náttúrufræðistofnun Íslands 1997.
Insects, spiders and other terrestrial arthropods (Dorling Kindersley Handbooks). Höf: George C. McGavin. Útg. Dorling Kindersley limited, London 2000.
Dulin veröld, smádýr á íslandi. Höf: Guðmundur Halldórsson, Oddur Sigurðsson og Erling Ólafsson. Útg. Mál og mynd ehf. 2002

Tvívængjur
Tvívængjur (Diptera) er einn af meginættbálkum skordýra og samanstendur af 130 ættum sem i eru um 120 þús. tegundir. Hér á landi lifa um 300 tegundir þeirra. Þessi skordýr greina sig frá öðrum að því leiti að þau hafa aðeins eitt vængjapar. Til þessa hóps teljast margar af þeim flugum sem eru áberandi hér á landi s.s. mýflugur, fiskiflugur og húsflugur.
Fiðrildi
Ættbálkur fiðrilda (Lepidoptera) telur um 165 þús. tegundir í 127 ættum. Lirfurnar eru yfirleitt plöntuætur en fullorðnu dýrin hafa sograna og lifa á blómasafa. Hérlendis lifa um 60 tegundir en að flækingum meðtöldum hafa fundist hér um 100 tegundir. Meirihluti íslenskra fiðrilda tilheyrir þremur ættum, en það eru fetaætt (Geometridae), ygluætt (Noctuidae) og vefaraætt (Tortricidae).

Fiðrildarannsóknir Náttúrufræðistofnunar Íslands
Á þessari síðu má finna talsverðar upplýsingar um fiðrildi (á ensku)
Æðvængjur
Ættbálkur æðvængja (Hymenoptera) samanstendur af 91 ætt, en innan þeirra eru um 200 þús. tegundir. Æðvængjur skiptast í tvo undirættbálka, sagvespur annarsvegar en snýkjuvespur, geitunga, maura, bý- og hunangsflugur hinsvegar. Hér á landi hafa fundist um 260 tegundir æðvængja.
Bjöllur
Bjöllur (Coleoptera) er fjölskipaður ættbálkur sem inniheldur 166 ættir og um 370 þús. tegundir. Hér á landi hafa fundist um 160 tegundir auk flækinga. Helsta einkenni þeirra er að fremra vængjaparið er ummyndað í skildi, en undir þeim eru flugvængirnir. Þær eru margvíslegar að stærð, lit og lögun og geta verið mjög skrautlegar.

Á þessum vef er að finna myndir ýmis konar skordýrum, meðal annars bjöllum (á ensku).
© Náttúrufræðistofa Kópavogs, 2002. Hamraborg 6a, 200 Kópavogur
Sími: 570-0430, Netfang: natkop@natkop.is