|
|
 |
 |
|
 |
Á þessari síðu er að finna útdrætti úr fyrirlestrum ásamt veggspjöldum (posterum) sem starfsfólk Náttúrufræðistofunnar hefur kynnt á ráðstefnum, sýningum og öðrum viðburðum. Listinn langt í frá tæmandi en unnið er að því að uppfæra hann.
|
 |
 |
|
|
Ráðstefna um vöktun og rannsóknir á umhverfismengun var haldin í Öskju þann 25. febrúar 2011. Ráðstefnan var vel sótt, en yfir 100 manns af öllu landinu skráðu sig til þátttöku. Fjallað var um mengunarvöktun frá ýmsum hliðum og gerð grein fyrir helstu verkefnum sem í gangi eru á þessu sviði. |
 |
 |
|
|
Að þessu sinni var Íslendingurinn þema safnanætur. Því lá beint við að leggja áherslu á hinar stórmerkilegu grunnvatnsmarflær, hina UPPRUNALEGU ÍSLENDINGA, sem fundist hafa all víða í vatnsmiklum lindarvatnskerfum nærri hinu eldvirka belti landsins.
|
 |
 |
|
|
Föstudaginn 8. og laugardaginn 9. október var haldið fyrsta Rannsóknaþing VoN á Háskólatorgi. Þar komu saman fræðimenn, kennarar og nemendur til að kynna sínar rannsóknir og skiptast á skoðunum. |
 |
 |
|
|
Á þessum ráðstefnum er áherslan á ýmsa vatnafræðilega og eðlisfræðilega þætti vatnakerfa og samspil þeirra við lífeðlis-, lífefna- og vistfræðilega þætti sem aftur hafa áhrif á vatnsgæði og þjónustu kerfanna.
|
 |
 |
|
|
Daganna 12-18 ágúst, 2007 var haldin í Montreal í Kanada, 30. ráðstefna alþjóðlegra samtaka vatnalíffæðinga (The International Association of Theoretical and Applied Limnology). Nokkur fjöldi íslendinga sótti ráðstefnuna, þar af einn starfsmaður Náttúrufræðistofunnar og flutti hann tvö erindi.
|
 |
 |
|
|
Árið 2004 var haldin XXIX ráðstefna alþjóðlegra samtaka vatnalíffæðinga (SIL- Societas Internationalis Limnologiae). Á Ráðstefnunni, sem var haldin í Lahti í Finnlandi, voru flutt erindi og veggspjöld kynnt um rannsóknir sem Náttúrufræðistofan stendur að. Þarna var um að ræða eina stærstu ráðstefnu heims um vatnalíffræði, en liðlega eitt þúsund manns skráðu sig til þáttöku. |
 |
 |
|
|
Daganna 9-12 nóvember var haldin í Reykjavík alþjóðleg ráðstefna á vegum ACIA (Arctic Climate Impact Assessment). Þar var fjallað um umhverfis- og loftslagsbreytingar, með áherslu á norðurheimskautið og aðlæg svæði. |
 |
 |
|
|
Ráðstefnan stóð í tvo daga og tókst afar vel. Haldnir voru um 80 fyrirlestrar, auk 8 yfirlitserinda. Þessu til viðbótar voru rannsóknaverkefni kynnt á um 130 veggspjöldum.
|
 |
 |
|
|
Hilmar Malmquist forstöðumaður sótti þessa ráðstefnu og flutti þar erindi um fjölbreytileika lífvera í fjöruvist íslenskra stöðuvatna. Er þar um að ræða niðurstöður úr rannsóknarverkefninu: Yfirlitskönnun á lífríki íslenskra vatna. Einnig var þar kynnt veggspjald með kynningu á niðurstöðum úr rannsóknarverkefninu: Vistfræði skötuormsins, en um bæði þessi verkefni er hægt að fá frekari upplýsingar undir liðnum "Rannsóknir" hér til vinstri. |
 |
|