

Í anddyri Náttúru- fræðistofunnar eru nú til sýnis lifandi slorpungar og steingervingar af frændum þeirra, strýtuþörungum. Nafngiftirnar vekja eflaust nokkra eftirtekt, en um er að ræða sambýli svokallaðra blágrænna baktería.
Strýtuþörungar eru meðal elstu og frumstæðustu lífvera jarðarinnar en blómaskeið þeirra var á forkambríum, tímabili sem spannar 3.800-545 milljón ár fyrir tímatal okkar. Í dag eru þeir fágætir en finnast þó á stöku stað.
Slorpungar, eins og þeir sem sjást á meðfylgjandi mynd, eru hins vegar nokkuð algengir m.a. hér á landi. Oftast finnast þeir í ám og vötnum en sumar tegundir finnast einnig uppi á landi þar sem raka gætir. Stærð slorpunga er misjöfn, allt frá títiprjónshaus og upp í þokkalega kartöflu. Litur þeirra er oftast eitthvert afbrigði af grænu en getur verið frá appelsínugulum yfir í nær svart.